Eigendur fasteigna í Bretlandi sem hyggjast selja eignir sínar hafir margir hverjir neyðst til að lækka ásett verð. Þetta kemur fram á vef Gurardian.
Samkvæmt könnun fasteignavefsíðunnar Zoopla.co.uk hafa 36,4% seljenda fasteigna lækkað ásett verð á fasteign sinni í að minnsta kosti eitt skipti síðan í ágúst. Að meðaltali hefur lækkunin verið 6,1% eða 16.000 pund.
Fasteignaverð í Bretlandi hefur lækkað mikið undanfarið og var lækkunin 0,9% í október.