Suðurafríska fyrirtækið Anglo American hefur ákveðið að setja demantsfyrirtækið De Beers á sölu í von um að stokka upp í eignasafni sínu og forða sér undan 34 milljarða punda yfirtöku BHP. Samsvarar það um 5952 milljörðum króna
Námufyrirtækissamstæðan Anglo American, sem er skráð í Kauphöllina í Lundúnum, er samkvæmt The Guardian að vinna í því að brjóta upp samstæðuna til að verja sig frá yfirtökutilboðinu sem ástralski námurisinn BHP lagði fram á dögunum.
Skiptar skoðanir eru meðal hluthafa um tilboðið.

Ríkisstjórn Suður Afríku, sem er stærsti hluthafi Anglo American í gegnum þjóðarsjóð, hefur sagst ætla ganga að tilboðinu.
Samkvæmt The Guardian sagði ráðherra námugraftar í Suður-Afríku, Gwede Mantashe, nýverið að honum hugnaðist þó betur að brjóta upp samstæðuna en að taka yfirtökutilboðinu.
Hugmyndin um að brjóta upp Anglo hefur einnig fengið hljómgrunn meðal verkalýðsfélaga og suðurafríska þingsins.