Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur úthlutað styrkjum að fjárhæð 130 milljónir króna til 12 verkefna á vegum sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga. Alls bárust 32 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 857 milljónir króna fyrir árið 2023.

Í tilkynningu innviðaráðuneytisins segir að styrkjunum sé ætlað að efla byggðir landsins. Þeim sé úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036.

„Markmiðið með framlögunum er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Áhersla er lögð á að styrkja svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.“

Ráðuneytið segir að verkefni sem hljóta styrk skulu nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans, eða landshlutanum í heild. Íbúaþróun, samsetning atvinnulífs og atvinnustig og meðaltekjur var meðal þess sem lagt til grundvallar við mat á umsóknum.

Verkefnin sem hljóta styrk:

Kostir í hitaveituvæðingu Grímseyjar – 4,3 milljónir króna.
Fyrirhugað er að staðsetja vinnsluholu og endurmeta fyrri gögn. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) hljóta styrk að upphæð 4.300.000 kr.

Verðmætasköpun á sauðfjárræktarsvæðum – 21,6 milljónir króna.
Verkefnið er hvati til nýsköpunar og verðmætasköpunar í strjálbýli sem á mikið undir sauðfjárrækt og miðar að því að tryggja byggðafestu. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Fjórðungssamband Vestfirðinga og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hljóta styrk að upphæð kr. 21.600.000.

Vatnaskil – 13 milljónir króna.
Nýsköpun og fjölbreyttara atvinnulíf í dreifbýli á Austurlandi með sérstaka áherslu á ungt fólk. Samband sveitarfélaga á Austurlandi hlýtur styrk að upphæð 13.000.000 kr.

Dalabyggð í sókn – 11,2 milljónir króna.
Ímynd, aðdráttarafl og staðarandi. Útbúa vörumerki og verkfærakistu fyrir Dalabyggð sem nýtist m.a. til að móta stefnu í markaðssetningu fyrir nýja íbúa, fjárfesta og í ferðaþjónustu. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hljóta styrk að upphæð 11.200.000.

Styrking innviða á Laugarbakka í Miðfirði til eflingar atvinnustarfsemi – 15 milljónir króna.
Verkefnið snýr að lagningu kaldavatnslagnar frá Hvammstanga til Laugarbakka. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hljóta styrk að upphæð kr. 15.000.000.

Baskasetur á Djúpuvík – 15 milljónir króna.
Byggja á upp Baskasetur Íslands sem verði miðstöð skapandi sjálfbærni, tengt lífríki hafsins. Fjórðungssamband Vestfirðinga hlýtur styrk að upphæð 15.000.000.

FabLab á Suðurnesjum – 10 milljónir króna.
Starfræn smiðja rekin í samstarfi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum hljóta styrk að upphæð 10.000.000 kr.

Iðnaðar- og þróunarsvæði á Drangsnesi – 7 milljónir króna.
Verkefnið snýr að þorskseiðaeldi í framhaldi af rannsóknum Ocean EcoFarm ehf. í Steingrímsfirði. Fjórðungssamband Vestfirðinga hlýtur styrk að upphæð 7.000.000 kr.

Straumhvörf – ný hringrás gesta um Austur- og Norðurland – 15,65 milljónir króna.
Um er að ræða samstarf SSA, SSNV, SSNE, áfangastofa Norður- og Austurlands, Austurbrúar og Markaðsstofu Norðurlands um framkvæmd hönnunar- og vörusmiðju nýrrar hringrásar ferðamanna um Austur- og Norðurland í tengslum við beint millilandaflug á Egilsstaði og Akureyri. Samband sveitarfélaga á Austurlandi hljóta styrk að upphæð 15.650.000 kr.

Uppbygging sérfræðistarfa við þróun þekkingartengdrar ferðaþjónustu á miðsvæði Suðurlands - 10 milljónir króna.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hljóta styrk að upphæð kr. 10.000.000.

Gígur – 2,25 milljónir króna
Uppbygging á aðstöðu fyrir nýsköpun, menntun og rannsóknir í Þingeyjarsveit. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hljóta styrk að upphæð 2.250.000 kr.

Iðngarðar í Búðardal – 5 milljónir króna.
Þarfagreining og frumhönnun á atvinnuhúsnæði fyrir iðngarða, sem skapa á aðstöðu fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hljóta styrk að upphæð kr. 5.000.000.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Í valnefndinni sitja þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Með valnefnd starfar Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun.