Origo hefur hlotið tilnefningu fyrir jafnréttisstefnu og aðgerðir í jafnréttismálum á Nordic Women in Tech Awards en sex konur hjá Origo hafa verið tilnefndar.

Nordic Women in Tech Awards er samstarfsverkefni norrænna samtaka sem eiga það sameiginlegt að beita sér fyrir fjölgun kvenna í tæknistörfum og fjölga kvenfyrirmyndum í tækni.

Tilnefningarnar hljóta þær Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðssviðs, Hildur Björk Pálsdóttir, sérfræðingur í jafnlaunamálum, Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, leiðtogi í breytingastjórnun, Kristín Hrefna Halldórsdóttir, forstöðumaður hjá gæða- og innkaupalausnum, Maria Hedman vörustjóri og Unnur Sól Ingimarsdóttir framendaforritari.

„Við erum svo lánsöm hjá Origo að undanfarin ár hefur konum fjölgað mikið og þeim fylgir þvílíkur kraftur. Það er því mjög ánægjulegt að sjá hversu margar í okkar röðum eru tilnefndar í ár. Við erum allar mjög stoltar og þakklátar að fá þessa viðurkenningu sem hvetur okkur áfram til góðra verka,“ segir Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Origo.

Í ár fara verðlaunin fram í Hörpunni þann 9. nóvember næstkomandi og verða sigurvegararnir valdir af alþjóðlegri dómnefnd skipuð tæknifólki úr ýmsum geirum á Norðurlöndunum.