Shell er í viðræðum um mögulega yfirtöku á samkeppnisaðilanum BP, samkvæmt heimildum Wall Street Journal. Viðræðurnar eru á frumstigi. Ef af yrði, gæti þetta orðið einn stærsti samruni í olíuiðnaðinum í heila kynslóð og jafnframt stærsta samrunatilboð ársins á heimsvísu.

Heimildir herma að fulltrúar fyrirtækjanna eigi í virkum samskiptum og að BP íhugi málið af alvöru. Yfirtaka á BP myndi styrkja stöðu Shell til að keppa við stærri olíurisa á borð við Exxon Mobil og Chevron.

Hér væri um að ræða sögulegan samruna tveggja svokallaðra ofur-risafyrirtækja í olíugeiranum – alþjóðlegra orkufélaga sem ráða verulegu um orkuframleiðslu heimsins.

Virði BP er áætlað um 80 milljarðar Bandaríkjadala, um 11.100 milljarðar íslenskra króna, en með yfirverði gæti kaupverðið farið yfir 83 milljarða dala, rúmlega 11.500 milljarðar króna. Það yrði stærsti olíusamruni síðan Exxon og Mobil sameinuðust árið 1998.

Talsmaður Shell sagði eftirfarandi í samtali við blaðið.

„Eins og við höfum margítrekað áður, einbeitum við okkur að því að hámarka verðmætasköpun í Shell með áframhaldandi áherslu á frammistöðu, aga og einföldun.“

Talsmaður BP neitaði að tjá sig.

Shell kemur sterkt inn í þessar viðræður því hlutabréf félagsins hafa staðið BP langt að baki síðustu ár. Þótt bæði fyrirtækin séu með höfuðstöðvar í Bretlandi starfa þau um allan heim. Markaðsvirði Shell er rúmlega 200 milljarðar dala eða yfir 27.000 milljarðar króna.

BP hefur á síðustu árum átt í erfiðleikum eftir misheppnaða tilraun til að beina rekstrinum frá jarðefnaeldsneyti yfir í endurnýjanlega orku. Félagið hefur glímt við óstöðugleika í stjórn félagsins og rekstrarerfiðleika.

Fjárfestingarsjóðurinn Elliott Investment Management, sem á yfir 5% hlut í BP, hefur frá því í febrúar þrýst á breytingar og dregið fram að BP gæti orðið skotmark samkeppnisaðila.

BP hefur síðan gripið til ráðstafana til að koma til móts við óánægju hluthafa – meðal annars með því að auka olíu- og gasframleiðslu og draga verulega úr fjárfestingum í grænni orku.

Þá vinnur félagið að sölu á Castrol-smurolíudeild sinni og hefur gefið til kynna að það kunni að selja hluta af sólardeildinni Lightsource.

Nýlega tilkynnti félagið einnig að stjórnarformaðurinn Helge Lund, sem stýrði lágt-kolefnisstefnu félagsins, hyggist láta af störfum.

Á sama tíma hefur Shell fært áherslurnar að nýju að arðbærustu sviðum rekstrarins, lofað aukinni olíu- og gasvinnslu og dregið úr umhverfistengdum markmiðum. Í maí hóf félagið umfangsmikla endurkaupaáætlun á eigin bréfum og vinnur einnig að sölu efnaiðnaðareigna í Evrópu og Bandaríkjunum.

Yfirtaka á BP myndi krefjast margra ára samþættingar, flókinnar vegna hugsanlegra menningarárekstra og nauðsynlegra söluaðgerða vegna yfirfærðra rekstrareininga. En slík samrunaaðgerð gæti styrkt alþjóðlega viðskiptadeild Shell og aukið yfirburði þess á sviði fljótandi jarðgass (LNG). Fjárfestar og greiningaraðilar telja jafnframt að fyrirtækin eigi vel saman í rekstri sínum í Mexíkóflóa.