Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hún mun hefja störf í september og jafnframt láta af störfum sem forstjóri Lyfju.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SA.
Sigríður er með B.Sc. gráðu í Rekstrarfræðum frá Háskólanum á Akureyri og hefur einnig sótt stjórnendanámskeið hjá IESE Business School og Harvard.
Hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri og forstjóri íslenskra fyrirtækja í tæp tuttugu ár auk þess hefur hún setið í stjórnum margra íslenskra fyrirtækja og hagsmunasamtaka.
Brýn verkefni framundan
„Öflugt atvinnulíf þýðir að lífskjör á Íslandi verða áfram með því besta sem þekkist í heiminum. Það er heiður að vera í forsvari fyrir Samtök atvinnulífsins, vinna með atvinnurekendum og þeim öfluga hópi fólks sem starfar hjá samtökunum. Verkefnin framundan eru brýn, ekki bara fyrir íslenskt atvinnulíf heldur samfélagið allt og ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir í fréttatilkynningu til fjölmiðla.
Reynslumikill stjórnandi til SA
„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er mikil, verðbólga er há, vextir eru háir og kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru lausir eftir 7 mánuði. Aðilar vinnumarkaðarins hafa átt í ágætu samtali allt frá því að núgildandi skammtímasamningar voru undirritaðir. En það er verk að vinna. Við náum ekki árangri nema með samstarfi, samtali og sameiginlegri sýn, stjórn Samtaka atvinnulífsins er sammála um það og við fögnum því að fá til liðs við okkur reynslumikinn stjórnanda,“ segir Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins.
Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mun sinna hlutverki framkvæmdastjóra SA þar til Sigríður Margrét tekur við.