Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SKE) frá árinu 2020 um að sekta Símann vegna ólíkra viðskiptakjara við sölu á Enska boltanum á Símanum Sport. ‏Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar.

Samkeppniseftirlitið lagði upphaflega á 500 milljóna króna sekt á Símann. Samkeppnisaðilinn Sýn hafði kvartað til SKE vegna kynningar, verðlagningu og skilmálum Símans í tengslum við Enska Boltann. Hann kostaði 1.000 krónur á mánuði með Heimilispakka Símans en 4.500 krónur þegar þjónustan var seld sér. Eftirlitið taldi að Síminn hefði brotið gegn sátt frá árinu 2015 með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónusta.

Áfrýjunarnefnd Samkeppnismála staðfesti ákvörðun SKE að hluta og lækkaði sektina niður í 200 milljónir króna í janúar 2021. Bæði Síminn og SKE kærðu úrskurðinn til Héraðsdóms Reykjavíkur.

Héraðsdómur felldi ákvörðunina, og þar með sektina, að öllu leyti úr gildi með dómi þann 11. október 2022 og hefur Landsréttur nú staðfest þá niðurstöðu.

Í tilkynningu Símans kemur fram að þar sem sektin hafði áður verið felld niður að fullu með dómi Héraðsdóms hefur niðurstaða Landsréttar ekki áhrif á reikninga félagsins.