Stjórn Símans leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 500 milljónir króna á árinu 2023. Auk þess mun stjórnin leggja til að lækka hlutafé til með tæplega 15,7 milljarða króna greiðslu til hluthafa, sem skýrist að sölu Símans á skuldabréfi sem félagið fékk afhent vegna sölunnar á Mílu.
Þetta kemur fram í ársreikningi Símans sem var birtur eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Síminn hafði þegar greitt út 31,5 milljarða króna í haust í kjölfar sölunnar á Mílu.
Rekstrarhagnaður Símans fyrir afskriftir (EBITDA) nam 6,15 milljörðum króna árið 2022 og jókst um 11,8% frá fyrra ári. Heildarhagnaður ársins nam 38,3 milljörðum króna sem má einkum rekja til sölunnar á Mílu til franska sjóðastýringafyrirtækisins Ardian í fyrra.
Rekstrartekjur Símans jukust lítillega á milli ára og námu tæplega 24,6 milljörðum króna í fyrra. í afkomutilkynningu Símans segir að sé horft til kjarnavara félagsins er tekjuvöxturinn 3,7%, en samdráttur var í öðrum tekjum.
„Tengist sá samdráttur að mestu leyti vörusölu búnaðar sem dróst saman um tæp 15%, sölu á fjarskiptabúnaði til Mílu árið 2021 og tekjum af endursölu Spotify, en Síminn hætti endursölu Spotify í ársbyrjun 2022.“
Orri Hauksson, forstjóri:
„Árið 2022 var eitt viðburðaríkasta árið í sögu Símans, sem í haust spannar 117 ár. Má segja að hver stórviðburðurinn hafi rekið annan allt til ársloka. Eitt það ánægjulegasta fyrir hluthafa var rekstrarafkoman síðustu mánuði ársins, sem leiddi til þess að niðurstaða ársins var sú besta í rekstrarsögu félagsins, þótt horft sé fram hjá hagnaði af sölu Mílu.
Við erum afar stolt af þessum árangri enda var margt sem keppti um athygli starfsmanna og stjórnenda á árinu. Má þar nefna skipulagsbreytingar, mannabreytingar og nýjar vörur sem kynntar voru til leiks. Við jukum fjölbreytileika í hópi stjórnenda og bjuggum fyrirtækið undir nýja framtíð með því að stytta boðleiðir innan þess. Títtnefnt söluferli Mílu var auk þess afar fyrirferðarmikið og reyndist langvinnt fram úr hófi. Í því ferli fluttust yfir 10 milljarðar króna frá íslenskum hluthöfum Símans til fjárfesta á meginlandi Evrópu.
Hitt er jákvætt, að viðskiptin hlutu á endanum samþykki samkeppnisyfirvalda og að sölunni lokinni stendur Síminn sem sterkt eignalétt þjónustufélag. Við teljum okkur nú geta sinnt kröfuhörðum viðskiptavinum félagsins til framtíðar af aukinni lipurð og hagkvæmni. Nú þegar Síminn á Mílu ekki lengur treystum við því að eftirlitsaðilar aflétti þungum opinberum kvöðum svo félagið öðlist langþráð athafnafrelsi til að keppa á markaði á jafnréttisgrundvelli, neytendum til heilla.
Eftir að samningar um sölu Mílu tókust upphaflega í október 2021 ákvað stjórn félagsins að stjórnendur skyldu kanna hvort félagið gæti nýtt það fé, sem vænta mátti úr sölunni, að hluta eða öllu leyti í arðbærari verkefni en þau sem hluthafar Símans gætu með góðu móti fundið á eigin spýtur. Í ljós kom að mögulegar fjárfestingar Símans á Íslandi verða ekki af þeirri stærðargráðu að þörf sé á söluverðmæti Mílu. Þá kom í ljós að hluthafar Símans telja almennt ekki að hið skráða rekstrarfélag Síminn hf. eigi að varðveita á eigin bókum háar upphæðir til að leita að verkefnum fyrir Símann utan Íslands.
Verkefni stjórnenda varð því að koma söluverðmæti Mílu í hendur hluthafa á fumlausan hátt. Þannig var hlutafé fært niður og greitt til hluthafa að upphæð 31,5 milljarðar króna í nóvember síðastliðnum og verður gert á ný í lok mars að upphæð 15,7 milljarðar króna, fallist aðalfundur á tillögur stjórnar. Síðari greiðsluna varð gerlegt að inna af hendi í formi reiðufjár eftir að seljendalán vegna sölu Mílu var selt. Mikill meirihluti hlutafjár Símans er í eigu íslenskra lífeyrissjóða og njóta því allir landsmenn góðs af þessum ríkulegu greiðslum til hluthafa. Skapist í framtíðinni fjárfestingatækifæri fyrir Símann af slíkri stærðargráðu, að þau útheimti á ný aukna fjármögnun til handa félaginu, mun samtalið snúast við og stjórn og stjórnendur munu þá óska eftir nýju hlutafé frá hluthöfum.
Nokkur atriði þróuðust gegn hagsmunum Símans í lok síðasta árs. Þannig lækkaði gengi íslensku krónunnar, sem hækkaði umtalsverðan hluta aðfanga Símans í krónum talið. Kjarasamningarnir sem Samtök atvinnulífsins náðu við flest verkalýðsfélög í landinu voru fagnaðarefni í sjálfu sér, en reyndust heldur dýrari en búist hafði verið við. Afturvirkni samninganna jók einnig launakostnað ársins 2022 umfram væntingar.
Margir góðir áfangar náðust í rekstrinum. Þannig má nefna að bandaríski sjónvarpsrisinn HBO valdi Símann í lok árs til að miðla gæðaefni sínu til Íslendinga næstu misseri. Bætir það með markvissum hætti sjónvarpsþjónustu Símans til handa viðskiptavinum sínum. Yfirvöld hafa einnig sett fram langtímaáætlanir um 5G tíðnileyfi. Því ber að fagna, þar sem Síminn getur nú með birgjum sínum, Mílu og Ericsson, hannað örugga 5G þjónustu sína til langrar framtíðar um land allt. Í lok síðasta árs tók Síminn einnig nýtt skref inn í heim fjártækni og stafrænnar lánaþjónustu til landsmanna, með útgáfu veltukorts í farsíma. Viðtökurnar hafa verið umfram væntingar og ánægjulegt að geta boðið lántakendum upp á sveigjanlega kosti. Fleiri spennandi nýjungar eru á leiðinni.
Síminn fjárfesti umtalsvert í uppfærslu innri kerfa og sjónvarpsefni á síðasta ári. Fjárfestingar félagsins fara nú lækkandi, verða þó áfram umtalsverðar í ár en úr þeim dregur hratt í kjölfarið. Í heild leiðir öll framangreind þróun til þess að starfsmenn og stjórnendur Símans horfa björtum augum til framtíðar.“