Síminn hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til ógildingar á ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabankans um að sekta fjarskiptafélagið um 76,5 milljónir króna í tengslum við upplýsingagjöf í aðdraganda sölunnar á Mílu. Greint er frá þessu á heimasíðu Seðlabankans.

Fjármálaeftirlitsnefndin sektaði Símann í byrjun nóvember sl. á grundvelli þess að stofnunin taldi að Síminn hefði ekki birt ætlaðar innherjaupplýsingar eða tekið ákvörðun um frestun á birtingu á ætluðum innherjaupplýsingum þann 31. ágúst 2021, í tengslum við mögulega sölu á Mílu.

Síminn telur sig hafa upplýst markaðinn opinberlega að eigendabreyting á Mílu hafi komið til greina auk þess sem upplýst hafi verið um að félagið myndi ræða við valda aðila. Fjárfestum hefði því mátt vera ljóst að það væri mögulegt að Míla yrði síðar seld.

„Síminn er eðlilega ósammála stofnuninni að á þeim tíma hafi verið til staðar innherjaupplýsingar og telur að fjárfestum hafi verið haldið upplýstum um ferlið með fullnægjandi hætti, m.a. með opinberri tilkynningu til kauphallar þann 31. ágúst 2021,“ segir í tilkynningu sem Síminn sendi frá sér í nóvember.

„Þar sem Síminn leit svo á að engum innherjaupplýsingum hafi verið til að dreifa þann 31. ágúst 2021, enda höfðu engin bindandi tilboð borist í félagið á þeim tíma, gat félagið af augljósum ástæðum ekki tekið afstöðu til frestunar upplýsinganna.“

Orri Hauksson, forstjóri Símans, sagði við Vísi í nóvember að Síminn hefði sagt frá öllu sem vitað var á hverjum tíma.