Síminn hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í BBI ehf., Dengsa ehf. og Billboard ehf. Heildarvirði (e. enterprise value) fyrirtækjanna þriggja samkvæmt kaupsamningi nemur 5.150 milljónum króna en verður leiðrétt með hliðsjón af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs.

Síminn hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í BBI ehf., Dengsa ehf. og Billboard ehf. Heildarvirði (e. enterprise value) fyrirtækjanna þriggja samkvæmt kaupsamningi nemur 5.150 milljónum króna en verður leiðrétt með hliðsjón af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs.

Seljendur eru félögin Landvist ehf., Var ehf., Klettaskarð ehf., Kasi Consulting ehf. og Birgir Örn Birgisson, sem eiga félögin þrjú í sömu hlutföllum.

Kaupin verða fjármögnuð með hlutafé í Símanum að andvirði 1.000 milljónir króna á genginu 9,886, sem er tíu daga meðalgengi hlutabréfa Símans fyrir undirritun kaupsamningsins. Kaupin eru að öðru leyti fjármögnuð með handbæru fé.

Verði af viðskiptunum og miðað við að forsendur Símans um samlegð gangi eftir er áætlað að ársvelta Símans (e. pro-forma) aukist um 1.450 milljónir og EBITDA um 800 milljónir á ársgrundvelli. Eru þær áætlanir byggðar sameiginlegum áætluðum rekstri fyrirtækjanna á árinu 2023.

Markvissari auglýsingar með kaupunum

Fyrirtækin starfa öll á auglýsingamarkaði og munu því styrkja þjónustuframboð Símans á því sviði, að því er segir í tilkynningu fjarskiptafélagsins til Kauphallarinnar.

„Síminn hefur á undanförnum árum verið að þróa auglýsingakerfi í sjónvarpi sem gerir viðskiptavinum kleift að beina auglýsingum á ákveðna markhópa og svæði, sem hefur í för með sér að auglýsingarnar eru markvissari fyrir viðskiptavini Símans. Með kaupunum á fyrirtækjunum þremur mun Síminn fá enn frekara tækifæri til að þróa og víkka út auglýsingaþjónustu sína, viðskiptavinum til hagsbóta.“

Með kaupunum á Dengsa og BBI, sem eru sögð hafa varið verulegum fjárhæðum síðustu ár í uppbyggingu innviða á höfuðborgarsvæðinu, segist Síminn fá innviði sem eru staðsettir víða á höfuðborgarsvæðinu í formi strætóskýla og skilta sem mögulega eru tækifæri á að nýta frekar við uppbyggingu 5G sendakerfis á höfuðborgarsvæðinu í framtíðinni.

Fyrirtækin verða starfrækt sem sjálfstæðar einingar fyrst um sinn. Vésteinn Gauti Hauksson, sem leitt hefur félögin þrjú, mun halda áfram sem framkvæmdarstjóri þeirra. Jafnframt muni framkvæmdarstjórn Símans vinna að því sameiginlega stefnumiði að styrkja þjónustuframboð samstæðunnar í heild.

„Síminn hefur á undanförnum árum boðið auglýsendum markvissan stafrænan vettvang til að ná til þeirra markhópa sem þeir kjósa. Sjónvarp hefur verið eini miðill Símans fram til þessa. Með kaupunum á félögunum þremur opnast ný tegund af miðlun og þannig styrkjum við til muna auglýsinga- og þjónustuframboð samstæðunnar,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans.

„Hin keyptu fyrirtæki eru vel rekin í dag og verða starfrækt sem sjálfstæðar einingar fyrst um sinn, en munu ásamt Símanum vinna að því sameiginlega stefnumiði að styrkja þjónustuframboð samstæðunnar í heild. Kaupin falla vel að þeirri stefnu Símans að byggja upp sífellt öflugra þjónustufyrirtæki fyrir íslenskt atvinnulíf og íslenska neytendur, sem er í fararbroddi í nýtingu stafrænnar tækni í afhendingu þjónustu sinnar.“

BBI ehf. sérhæfir sig í fjárfestingum og rekstri auglýsingainnviða ásamt sölu margvíslegs búnaðar til þriðja aðila. Félagið selur og leigir út vörur tengdar stafrænum auglýsingaskjám, auglýsingaskilti, auglýsingastanda, næðisrými og annan búnað til viðskiptavina utan neytendamarkaðar.

Dengsi ehf. er samstarfsaðili sveitarfélaga um rekstur biðskýla fyrir strætisvagna. Félagið er með samninga við ýmis sveitarfélög allt frá Borgarnesi til Reykjanesbæjar. Félagið rekur um 350 biðskýli í viðkomandi sveitarfélögum ásamt 50 auglýsingastöndum. Samtals er um að ræða um 800 auglýsingafleti sem gert er ráð fyrir að verði orðnir um 900 í lok árs 2024. Þar af verða um 600 stafrænir skjáir.

Billboard ehf. sérhæfir sig í stafrænni umbreytingu flettiskilta. Félagið hefur síðustu nær tíu ár unnið að því að stækka hlutdeild umhverfisauglýsinga á íslenskum auglýsingamarkaði. Félagið er með samninga um rúmlega 50 auglýsingafleti á stórum skiltum sem eru yfir 12 fermetrar að stærð.