Verslunin Matarbúðin Nándin við Austurgötu 47 í Hafnarfirði hélt upp á fimm ára afmæli sitt í vikunni en verslunin opnaði 17. júní 2020. Hún er rekin af fjölskyldufyrirtækinu Urta Islandica, sem leggur mikla áherslu á umhverfisvænar og plastlausar umbúðir.
Þóra Þórisdóttir, framkvæmdastjóri Matarbúðarinnar, segir að verslunin hafi djúpa tengingu við fjölskylduna en húsið sem hýsir verslunina hefur einnig verið heimili hennar í 35 ár.
„Þegar ég keypti húsið þá hugsaði ég með mér að kjallarinn gæti verið góður staður fyrir fyrirtæki í framtíðinni. Þegar hrunið kom þá var ég að vinna í myndlist og var líka tekjulaus. Ég ákvað því að stofna jurtafyrirtæki og byrjaði að búa til vörur eins og te, síróp og jurtasölt.“
Fyrirtækið Urta Islandia varð þá til og í gegnum það seldi Þóra eigin jurtavörur til viðskiptavina og verslana með góðum árangri. Framleiðslan var síðan færð frá Hafnarfirði til Keflavíkur og losnaði þá jarðhæðin við Austurgötuna þar sem verslun fyrirtækisins er í dag.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.