Christian Kamhaug, upplýsingafulltrúi Wolt fyrir Noreg, Ísland og Lúxemborg, sér ekki fram á að erlend glæpagengi fari að ráða matarsendla til sín í vinnu í gegnum fyrirtækið á Íslandi líkt og hefur verið að gerast í Noregi.

Hann segir að um sé að ræða grafalvarlegt mál sem Wolt líti á alvarlegum augum. Fyrirtækið segist þegar hafa innleitt fjölda aðgerða til að sporna við slíkri starfsemi.

Norska ríkisútvarpið greindi frá því í fyrradag að rúmenskir glæpahópar hefðu verið að setja upp reikninga í nafni sendla ýmist hjá Wolt eða Foodora. Í grein Vísis, sem birt var í gær, segir að sendlarnir fari síðan í hefðbundnar sendiferðir en að stærsti hluti tekna renni síðan til höfuðpaura glæpasamtaka.

„Við fengum fyrst að vita af notkun bíla sem skráðir voru í Rúmeníu í febrúar af norska veggjaldafyrirtækinu Fjellinjen. Fyrirtækið hafði tekið eftir ákveðnu mynstri í notkun rúmenskskráðra bíla í Ósló. Vanalega er það ekki vandamál þegar kemur að greiðslu vegatolla þar sem norsk stjórnvöld hafa aðgang að flestum evrópskum bílnúmerum og rukka eigendur beint,“ segir Christian.

Af einhverri ástæðu hefur norska lögreglan hins vegar ekki aðgang að rúmenskum bílnúmerum en Christian segir að sú staða sé sem betur fer að breytast. Wolt hafi þá einnig vitað um dæmi þar sem verið var að deila reikningum en félagið var ekki meðvitað um umfang vandans fyrr en lögreglan hafði samband.

Hann segir að Wolt eigi nú í góðu og uppbyggilegu samstarfi við lögregluna í Noregi og að fyrirtækið hafi þegar innleitt fjölda aðgerða til að draga úr vandamálinu. Christian telur einnig að þetta vandamál muni ekki endurtaka sig í nágrannalöndum Noregs.

„Við sjáum ekki fram á að þetta muni gerast á hinum Norðurlöndunum, þar með talið á Íslandi. Við teljum að þetta hafi gerst vegna ákveðinna galla í norskum lögum sem leyfa erlendum ríkisborgurum að nota bílnúmer, sem eru skráð erlendis, í viðskiptalegum tilgangi í Noregi. Við munum biðja löggjafann um að breyta löggjöfinni til að gera það erfiðara að aka ólöglegum erlendum ökutækjum í Noregi.“

Hann gagnrýnir einnig umfjöllunina og segir þetta vera mjög lítinn hluta af þeim sendlum sem starfa hjá Wolt í Ósló. Rúmensk glæpagengi hafi þá ekki tekið yfir reksturinn eins og fjölmiðlar hafa gefið til kynna. Meirihluti sendla, bæði í Noregi og á Íslandi, séu duglegir og löghlýðnir borgarar sem fylgja reglum, greiða skatta og veita bæði viðskiptavinum og veitingastöðum góða þjónustu.

„Við munum að sjálfsögðu einnig taka ábyrgð þar sem við getum og erum þegar farin að innleiða fjölda aðgerða til að draga úr þessum vandamálum. Ég er viss um að þær aðgerðir sem við erum að innleiða í Noregi verði einnig aðgengilegar á Íslandi til að tryggja að við getum forðast svipuð vandamál hér.“