Alls bárust sjö umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra menningar- og viðskiptaráðuneytisins, samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Staðan var auglýst þann 27. desember síðastliðinn og umsóknarfrestur rann út þann 23. janúar 2023.

Lilja D. Alfreðsdóttir, Menningar- og viðskiptaráðherra, skipar í embættið til fimm ára frá og með 1. mars 2023. Skúli Eggert Þórðarson tók við embættinu fyrir rúmu ári.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

  • Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum
  • Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri
  • Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, fv. sparisjóðsstjóri
  • Gísli Halldór Halldórsson, fv. bæjarstjóri
  • Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri
  • Sigurður Erlingsson, fv. forstjóri Íbúðalánasjóðs
  • Þröstur Óskarsson, sérfræðingur

Þriggja manna hæfnisnefnd hefur verið skipuð af menningar- og viðskiptaráðherra til að meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra.

Formaður hæfnisnefndarinnar er Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar og ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, og aðrir nefndarmenn eru Magnús Pétursson, fyrrverandi ríkissáttasemjari og ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og Valgerður Rún Benediktsdóttir, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi skrifstofustjóri í atvinnuvegaráðuneytinu.