Framtakssjóðirnir AF1 og AF2 í rekstri Alfa Framtaks högnuðust samanlagt um 3,4 milljarða króna á síðasta ári.
Sjóðurinn AF1, sem settur var á laggirnar árið 2018, hagnaðist um 1,85 milljarða króna samanborið við 2,75 milljarða árið áður. Sjóðurinn AF2, sem settur var á laggirnar árið 2022, hagnaðist um 1,52 milljarða samanborið við 1,9 milljarða árið áður.
Alfa Framtak hefur komið að ýmsum verkefnum í gegnum sjóðina tvo, en meðal þeirra stærstu eru kaup Travel Connect á Iceland Travel, yfirtakan á Origo og kaupin á ráðandi hlut í Lyf og heilsu.
AF1 er 7 milljarðar króna að stærð og hefur fjárfest í sex verkefnum: Borgarplasti, Motus, Málmsteypu Þorgríms Jónssonar, INVIT, Nox Health og Travel Connect.
AF2 er 15 milljarða króna að stærð og er nú fullfjárfestur í sex verkefnum en þau eru Thor Ice Chilling Solutions, Skyggnir (áður Origo), Reykjafell, Knox hotels og Lyf og heilsa.
Alfa Framtak lauk á dögunum fjármögnun á rúmlega 22 milljarða króna framtakssjóði sem ber heitið AF3 og er þriðji sjóðurinn í rekstri félagsins. Gunnar Páll Tryggvason er framkvæmdastjóri Alfa Framtaks.
Nánar er fjallað um málið Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér og viðtalið í heild hér.