Fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækið Sýn hefur tilkynnt um að frá og með 1. ágúst nk. verði línulega sjónvarpsstöðin Sýn, áður Stöð 2, í opinni dagskrá fyrir alla landsmenn.
„Á sama tíma gerum við áherslubreytingar sem fela í sér að allt efni birtist fyrst á streymisveitunni Sýn+, einni stærstu streymisveitu landsins með hundruð innlendra og erlendra titla,“ segir í tilkynningu Sýnar.
„Áskrifendur Sýnar+ munu njóta aukins sveigjanleika og aðgangs að sjónvarpsefni áður en það birtist í línulegri dagskrá. Áskrifendur geta hámhorft hvar og hvenær sem er, án auglýsinga inni í þáttum. Þá verður valið sjónvarpsefni eingöngu aðgengilegt í gegnum Sýn+.
Tekið er fram að kvöldfréttir og Ísland í dag verði áfram á sínum stað í opinni dagskrá á Sýn.
Félagið segir að á næstu dögum og vikum muni það hafa samband við áskrifendur og kynna nýtt pakkaframboð Sýnar.
Í fyrsta skipti í sögu stöðvarinnar
„Sýn gegnir lykilhlutverki í íslensku samfélagi sem vettvangur frétta, íþrótta og menningarlegrar upplifunar,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.
„Á síðasta ári ákváðum við að bjóða sjónvarpsfréttir Sýnar án endurgjalds til landsmanna. Nú göngum við skrefinu lengra og gerum alla dagskrá línulegu sjónvarpsstöðvarinnar SÝN aðgengilega án endurgjalds, í fyrsta skipti í sögu stöðvarinnar.
Um leið höldum við áfram að mæta breyttum áhorfsvenjum með þjónustu sem býður upp á aukið frelsi, meiri upplifun, hámhorf og forskot á innihald.
Streymisveitan SÝN+ er fyrir þá sem vilja njóta efnis fyrr, velja hvar og hvenær þeir horfa og fá aðgang að fjölbreyttu úrvali af hágæða sjónvarpsefni. Hvort sem um ræðir vinsælustu íslensku þáttaraðirnar, heimildamyndir, barnaefni eða aðra afþreyingu þá fá áskrifendur SÝN+ meira efni á undan öðrum. Sýn byggir á sterkum grunni og munum við áfram kappkosta við að bjóða viðskiptavinum okkar upp á skemmtilegt sjónvarpsefni, metnaðarfulla íslenska dagskrá og allt það besta úr heimi íþróttanna. Það er betra að vera með Sýn.”