Árið 1994 markaði upphaf sjónvarpsþátta sem áttu vægast sagt eftir að falla vel í kramið hjá áhorfendum en þá kynntumst við fyrst vinunum Rachel, Ross, Chandler, Monicu, Phoebe og Joey í Friends.
Þættirnir voru ekki ólíkir öðrum gamanþáttum sem voru vinsælir á þessum tíma en það kom ekki að sök.

Seríurnar áttu eftir að verða tíu talsins á jafn mörgum árum og því markaði árið 2024 bæði 30 ára afmæli fyrsta þáttarins og 20 ára afmæli síðasta þáttarins. Þættirnir voru þó ekki sýndir í sjónvarpi hér á landi fyrr en sumarið 1995.
Á göngu sinni vann Friends til sex Primetime Emmy verðlauna og hlaut á sjötta tug tilnefninga. Aðdáendum til mikillar gleði komu vinirnir sex saman árið 2021 fyrir sérstakan endurfundar þátt og var nostalgían allsráðandi. Í október 2023 bárust aftur á móti þær sorgarfréttir að Matthew Perry, hinn eini sanni Chandler Bing, hefði fundist látinn á heimili sínu.
Bráðamóttakan í 15 ár

Læknadramaþættirnir ER eða Bráðamóttakan, eins og þættirnir voru kallaðir á góðri íslensku, hófu sömuleiðis göngu sína árið 1994 með leikurum á borð við George Clooney, sem var á þeim tíma tiltölulega óþekktur leikari en átti heldur betur eftir að gera gott mót.
Slíkir þættir voru ekki nýir af nálinni, læknadrama var orðið vinsælt viðfangsefni áratugum fyrr, en þættirnir teljast þó með þeim betri ef litið er yfir farinn veg. Seríurnar urðu 15 talsins á jafn mörgum árum en þættirnir unnu til 23 Primetime Emmy verðlauna á göngu sinni og hlutu um 100 tilnefningar til viðbótar.
Nánar er fjallað um málið í nýútkomnu 30 ára afmælistímariti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér.