Samkvæmt skýrslu Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA) virðast stjórnvaldssektir á íslensk fjármálafyrirtæki vera sérflokki á Evrópska efnahagssvæðinu.
Í heildina voru lagðar 970 stjórnvaldssektir á fjármálafyrirtæki innan EES-svæðisins fyrir 71 milljón evra á árinu 2023. Þrátt fyrir smæð landsins og fjármálakerfisins greiddu íslensk fjármálafyrirtæki um 11% af heildarsektarfjárhæðum á EES-svæðinu sem fjallað er um í skýrslunni og næst hæstu heildarfjárhæðina allra ríkja á eftir Frakklandi. Íbúafjöldi Íslands er innna við 0,1% af íbúafjölda svæðisins.
Ef undirflokkar málefnasviðs skýrslunnar eru skoðaðir má sjá að íslensk fjármálafyrirtæki greiddu 42,5% af öllum sektum innan Evrópusambandsins fyrir brot á MiFID II tilskipuninni og MiFIR reglugerðinni frá framkvæmdastjórn ESB.
MiFID er samheiti yfir evrópskt regluverk um markaði fyrir fjármálagerninga á meðan MiFIR reglugerðin felur í sér víðtækar kröfur um gagnsæi fyrir og eftir viðskipti.
Árið 2023 voru gefnar út 289 stjórnsýslusektir í Evrópu vegna brota á reglugerðunum tveimur og voru flestar sektir í Danmörku (42), síðan á Kýpur (38) og síðan Búlgaríu (30).
Á Íslandi voru sektirnar ekki nema fimm en engu að síður borguðu íslensk fjármálafyrirtæki næstum helming af sektarfjárhæðunum á öllu EES-svæðinu tengt MiFID II
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði