Vodafone hefur unnið að uppbyggingu 5G kerfis á Íslandi og hefur nú lokið uppsetningu á tveimur 5G sendum í Skagafirði. Sendarnir eru á Hegranesi og inni á Sauðárkróki. Skagafjörður er því nú með eitt besta 5G samband á landinu.
„Starfsmenn okkar hafa verið í vinnu síðustu vikurnar við uppsetningu á 5G sendum á svæðinu. Síðustu ár hefur Vodafone einnig unnið að eflingu 4G á svæðinu meðal annars með uppsetningu á nýjum sendastöðum ásamt uppfærslu á sendum. Því hafa tengingar í Skagafirði verið stórbættar fyrir íbúa svæðisins sem og ferðamenn,“ segir Bjarni Freyr Guðmundsson, rekstrarstjóri Vodafone á Norðurlandi.
„Í haust stefnum við á að klára innleiðingu á svokölluðu VoWIFI, sem þýðir að notendur munu geta sett upp og móttekið hefðbundin símtöl yfir Wifi. Þessi tækni getur komið sér vel á bæjum og sumarhúsum þar sem ljósleiðaratenging er til staðar en ekki gott farsímamerki innanhúss.“