Skagi hf. er nú formlega skráð sem nafn móðurfélags VÍS trygginga hf., Fossa fjárfestingarbanka hf. og Íslenskra verðbréfa hf. Félagið greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar í dag.

Móðurfélag samstæðunnar hefur undanfarin misseri verið starfrækt undir nafni Vátryggingafélags Íslands hf. en fær nú nafnið Skagi í kjölfar þess að tryggingarekstur var færður í dótturfélag í upphafi árs. Félagið segir þetta lokahnykkinn í þeirri vegferð að koma samstæðu Skaga í sitt framtíðarhorf.

Félagið segir að við sameiningu VÍS og Fossa fjárfestingarbanka árið 2023 hafi hafist umbreytingarferli félaganna í öfluga fjármálasamstæðu. Framtíðarfyrirkomulag samstæðunnar, sem var kynnt þá, gerði ráð fyrir móðurfélagi og þremur dótturfélögum; VÍS tryggingum hf., Fossum fjárfestingarbanka hf. og SIV eignastýringu.

Á síðasta ári gekk Skagi frá kaupum á Íslenskum verðbréfum og sameinast nú starfsemi eignastýringar undir nafni Íslenskra verðbréfa.

„Við höfum unnið markvisst að samþættingu starfsemi okkar með það að markmiði að skapa aukið virði fyrir viðskiptavini, hluthafa og samfélagið í heild,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga.

„Skráning nafnsins er mikilvægur áfangi í þeirri vegferð. Nafnið Skagi endurspeglar þá sameinuðu krafta sem við höfum byggt upp innan samstæðunnar og styrkir stöðu okkar á fjármála- og tryggingamarkaði.“

Haraldur segir að félagið hafi m.a. séð miklar framfarir í tryggingastarfseminni þar sem það hafi tekist að auka ánægju viðskiptavina og bætt afkomu VÍS.

Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, og Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga.
© Aðsend mynd (AÐSEND)