Stjórn Skagans 3X hefur á­kveðið að leggja niður starfs­stöð fyrir­tækisins á Ísa­firði og hefur öllum 27 starfs­mönnum fyrir­tækisins þar verið sagt upp störfum. Þetta kemur fram í til­kynningu frá fyrir­tækinu.

„Á­kvörðunin er afar þung­bær en byggir á um­fangs­mikilli endur­skipu­lagningu og hefur þegar verið kynnt bæjar­yfir­völdum á Ísa­firði og verka­lýðs­fé­lögum,“ segir í til­kynningu til fjöl­miðla.

„Rekstur Skagans 3X hefur verið mjög þungur síðustu misseri og eins og áður hefur komið fram þurfti fyrir­tækið að fara í viða­mikið endur­mat á skuld­bindingum og kröfum í kjöl­far eig­enda­skipta. Þá hefur ólga verið á helstu mörkuðum þess síðustu misseri, bæði vegna stríðs­á­taka sem tengjast Rúss­landi og Co­vid-heims­far­aldursins. Við höfum velt við hverjum steini þar sem þær rekstrar- og markaðs­legu for­sendur sem lagt var upp með við eig­enda­skiptin hafa ekki gengið eftir. Niður­staðan varð sú að sam­þætta alla fram­leiðslu á Akra­nesi,“ er haft eftir Sig­steini Grétars­syni, for­stjóra Skagans 3X í til­kynningunni.

Á síðasta ári eignaðist þýska fyrir­tækið Baader fyrir­tækið að fullu og segir Skaginn 3x í frétta­til­kynningu að á­fram sé unnið að því að efla sam­keppnis­hæfni fyrir­tækisins á al­þjóða­mörkuðum og sam­þætta enn frekar starf­semina við al­þjóð­lega starf­semi Baader.

Baader-sam­steypan og starfs­menn hennar á Ís­landi munu á­fram bjóða við­skipta­vinum sínum upp á fram­úr­skarandi þjónustu og vara­hluta­sölu í nánu sam­starfi við ís­lenskan sjávar­út­veg og fisk­eldi.