Hagkaup hefur opnað skálastaðinn Skálina í Hagkaup Skeifunni. Á Skálinni er boðið upp á skálar úr skyr-, jógúrt-, hafrajógúrt- og acaí-grunni, sem fólk getur síðan toppað með ferskum ávöxtum, stökku granóla, hnetusmjöri og ýmiss konar fleira góðgæti að eigin vali.

Í tilkynningu segir að það sem einkenni Skálina er að skyr- og jógúrtgrunnarnir eru kældir í ísvél, sem veltir hráefninu í hringi áður en skálin er sett saman.

Fyrir vikið verða skyr- og jógúrtgrunnarnir léttari í maga og búast mætti við ef þeir væru kældir í hefðbundnum kæli, svipaður og rjómaís.

„Rétt eins og skyrið hefur alla tíð verið stór hluti af matarmenningu Íslendinga, þá elskum við öll að fá okkur ís. Þegar þessi hugmynd fæddist, að setja skyr í ísvél og sjá hvað myndi gerast, þá eðlilega urðu allir mjög spenntir. Útkoman er síðan framar okkar björtustu vonum, skyrið verður dálítið eins og rjómaís og þetta kemur mjög vel út, “ segir Karolina Aleksandra Styrna, aðstoðarverslunarstjóri Hagkaups í Skeifunni.