Deilur Íslenska kalkþörungafélagsins við skattayfirvöld, sem hófust með fyrirspurn skattsins um milliverðlagningu félagsins árið 2020 en endaði með 2,4 milljarða endurákvörðun, er nú í höndum dómstóla. Hafi skattayfirvöld betur þar, segir Halldór Halldórsson forstjóri að það marki endalok félagsins en endurákvörðunin er meiri en velta félagsins.

„Dramatískasta svarið við þessu, ef við töpum öllu, er svoleiðis að sagan er skrifuð af sigurvegurunum. Ef við töpum þessu öllu þá verður ríkið sigurvegarinn vegna þess að það virðist vera einbeittur vilji ríkisins að koma þessu máli svona áfram og þá mun ríkið standa yfir líkinu á Íslenska kalkþörungafélaginu,“ segir Halldór í samtali við Viðskiptablaðið.

„Kvótinn var farinn, rækjuverksmiðjan var stopp“

Halldór var meðal ræðumanna á Skattadegi Deloitte, Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins í síðustu viku en hann hóf ræðu sína á því að varpa upp mynd af Bíldudal fyrir gesti.

„Hér sjáið þið Bíldudal. Fallegt kyrrlátt þorp við Arnarfjörð. Í kringum árið 2000 var þarna enn kyrrlátara en í dag. Það var nánast ekkert um að vera, kvótinn var farinn, rækjuverksmiðjan var stopp, togarinn var farinn, þorpið var í dauðateygjunum,“ sagði Halldór.

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða stofnaði Íslenska kalkþörungafélagið ehf. árið 2001 í von um að sporna við að byggð á Bíldudal legðist af. Félagið fór í rannsóknir sem sýndu fram á að kalkþörungaset á svæðinu væri í vinnanlegu magni og auglýsti eftir samstarfsaðilum.

„Það gaf sig enginn fram. Það var reynt að fá íslenska samstarfsaðila en það var enginn tilbúinn í þetta,“ sagði Halldór á Skattadeginum og bætir við að Kalkþörungafélagið hafi hálfpartinn pínt írska félagið Marigot til að fara í verkefnið.

Marigot eignaðist 75% í Kalkþörungafélaginu árið 2001 og 99% árið 2009 og hefur félagið fjárfest fyrir um 22 milljónir evra, eða um 3,3 milljarða króna á gengi dagsins, á Íslandi.
Að sögn Halldórs hefði félagið ekki getað tekið slaginn við skattayfirvöld án móðurfélagsins en forsvarsmenn Marigot eru sagðir gáttaðir á framgöngu Skattsins.

Þessi frétt er hluti af lengri umfjöllun Viðskiptablaðsins um málefni Íslenska kalkþörungafélagsins en áskrifendur geta lesið umfjöllunina hér.