Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur ákveðið að óska eftir leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 18. nóvember síðastliðnum, um að fella úr gildi breytingar á búvörulögum, beint til Hæstaréttar.
„Að mati Samkeppniseftirlitsins hefur niðurstaða málsins augljóst fordæmisgildi um heimild til þess til að beita samkeppnislögum vegna samruna kjötafurðastöðva og annarrar háttsemi slíkra félaga sem kann að fara gegn ákvæðum samkeppnislaga,“ segir í tilkynningu á vef SKE.
„Þá hefur niðurstaða málsins að mati eftirlitsins almenna þýðingu um stjórnskipulegt gildi laga nr. 30/2024 um breytingu á búvörulögum og þann áskilnað sem felst í 44. gr. stjórnarskrárinnar um að ekkert lagafrumvarp megi samþykkja fyrr en það hafi verið rætt við þrjár umræður á Alþingi. Jafnframt hefur niðurstaða málsins verulega samfélagslega þýðingu þegar litið er til þeirra áhrifa sem undanþáguheimildir búvörulaga hafa á starfsskilyrði bænda og samkeppni á kjötmarkaði.“
Samkeppniseftirlitið upplýsir um að það hafi í dag ritað kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf þar sem greint er frá ákvörðun eftirlitsins um að áfrýja dómi héraðsdóms. Jafnframt er þeim tilmælum beint til viðkomandi aðila að grípa ekki til neins konar aðgerða sem farið geta gegn samkeppnislögum á meðan mál þetta er fyrir dómstólum.
Í tilkynningunni er bent á að samkvæmt lögum um meðferð einkamála sé Samkeppniseftirlitinu heimilt að óska eftir leyfi til að áfrýja dómi héraðsdóms beint til Hæstaréttar. Er heimilt að veita slík leyfi ef niðurstaða máls getur haft fordæmisgildi, haft almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna eða haft verulega samfélagslega þýðingu að öðru leyti.