Skel fjárfestingarfélag undirritaði í dag kaupsamning um 55 íbúðir, samtals 5.905 fermetrar, við Stefnisvog 2 í Reykjavík fyrir 4,9 milljarða króna. Seljandi er Stefnisvogur 2 ehf. Gert er ráð fyrir því að íbúðirnar verði afhentar fyrir lok árs 2023.

Samhliða undirritun kaupsamnings var gert samkomulag um kauprétt Skeljar að 35 íbúðum, samtals 3.816 fermetrar, við Stefnisvog 12 í eigu Stefnisvogs ehf. Verð samkvæmt kauprétti er um 3.244 milljónir króna. Nýti Skel kaupréttinn er gert ráð fyrir því að íbúðirnar við Stefnisvog 12 verði afhentar fyrir árslok 2024.

„Skel stefnir að því að setja íbúðir í útleigu,“ að því er segir í tilkynningu Skeljar til Kauphallarinnar.

Afhenda hluti í Reir þróun á móti

Sé gert ráð fyrir að Skel nýti kaupréttinn verður kaupverðið á hinum 90 íbúðum við Stefnisvog 2 og 12 samtals um 8,1 milljarður króna.

Félögin Stefnisvogur ehf. og Stefnisvogs 2 ehf., seljendur í framangreindum viðskiptum, eru í eigu Reirs ehf., sem er í 86% eigu hjónanna Hilmars Þórs Kristinssonar og Rannveigar Eirar Einarsdóttur.

Byggingarfélagið Reir Verk, dótturfélag Reirs ehf., hefur unnið að byggingu á þriðja hundrað íbúða á fjórum fjölbýlishúsalóðum í Vogabyggð.

Stefnisvogur 2 er fjölbýlishús í vogabyggð. Mynd tekin af heimasíðu framkvæmdaaðilans Reir Verks.

Fram kemur að hluti kaupverðs verði greiddur með afhendingu hlutafjár og hluthafalána í Reir þróun ehf. á bókfærðu verði. Bókfært virði hlutafjár og fjárhæð hluthafalána Skeljar í Reir þróun í lok júní síðastliðnum nam samtals 1.753 milljónum króna.

Reir þróun var stofnað árið 2022 af Skel og Fasta, félags í eigu Hilmars Þórs og Rannveigar Eirar. Skel og Fasti hafa átt Reir þróun til helminga.

„Komi til nýtingar kaupréttar verður Skel búið að afhenda alla hluti félagsins í Reir þróun. Að öðru leyti verður kaupverðið fjármagnað með bankaláni og reiðufé,“ segir í tilkynningunni.

„Skel hefur reynslu og þekkingu á fasteignamarkaði, en 17% eigna félagsins eru í fasteignum eða félögum sem reka og þróa fasteignir. Skel telur að gerjun sé framundan á fasteignamarkaði, m.a. vegna breytinga hjá stórum leigufélögum. Framboð hefur ekki svarað eftirspurn á undanförnum árum og eftirspurn vex ár frá ári. Íbúðirnar við Stefnisvog 2 verða settar í langtímaleigu,“ segir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar.

17% eignasafnsins í fasteignum eða fasteignafélögum

Skel er stærsti hluthafi fasteignafélagsins Kaldalóns með 15,4% hlut sem er um 2,6 milljarðar króna að markaðsvirði. Kaldalón, sem er skráð á First North-markaðinn, einblínir á tekjuberandi atvinnueignir í sínum rekstri.

Skel á einnig fasteignir í Litlatúni 1 í Garðabæ og Austurströnd 7 á Seltjarnarnesi ásamt því að eiga helmingshlut í fasteignaþróunarfélaginu Helgafellsásar og í Öxl fasteignum sem sem á lóðir í Hveragerði.

Fasteignir í eigu Skeljar. Skjáskot úr ársskýrslu fjárfestingarfélagsins.