Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins, Elkem, Norðuráli og Rio Tinto og fjarvarmaveitum að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Þessir notendur hafa ekki sætt skerðingum fyrr á þessum vetri.

Skerðingarnar hefjast 19. janúar nk. og gert er ráð fyrir að þær geti staðið allt til 30. apríl, að því er kemur fram í tilkynningu Landsvirkjunar. Lengd skerðingartímabils mun þó fara eftir vatnsbúskap á næstu vikum og mánuðum.

„Staðan hefur enn versnað frá síðasta mánuði, þegar grípa þurfti til takmörkunar á afhendingu víkjandi orku til fiskimjölsverksmiðja og fiskþurrkana, auk gagnavera sem stunda rafmyntagröft,“ segir Landsvirkjun.

Desember var verulega þurr mánuður syðra og lónstaða Þórisvatns með versta móti að sögn Landsvirkjunar. Innrennsli í Þórisvatn þetta haustið er innan verstu 5% sem sést hafa. Áætlanir sýna að yfirborð Þórisvatns gæti farið niður fyrir 562 metra yfir sjávarmáli í vor sem hefur aðeins gerst einu sinni, en lægst hefur lónið áður farið í 560,3 m.y.s. vorið 2014.

Landsvirkjun segir að þetta dræma innrennsli leiðir til þess að skerða þarf afhendingu orku um allt að 200 GWst til viðbótar við það sem áður hefur verið tilkynnt.

Gert er ráð fyrir fullri nýtingu skerðingarheimilda í þeim samningum sem um ræðir, en skerðingarheimildin er mismunandi eftir samningum. Almennt nemur skerðingin um 10% á mánuði, en það er þó misjafnt eftir samningum, m.a. eftir því hversu hratt fyrirtækin geta dregið úr orkunotkun sinni.

Aukin flutningsgeta kæmi í veg fyrir skerðingar

Stórnotendur fyrir norðan svokallað snið IIIb verða ekki fyrir þessum skerðingum. Snið IIIb er sá flöskuháls í kerfinu sem hefur mest áhrif á orku- og aflnýtingu virkjana, en sniðið er skilgreint af Blöndulínu 1 í vestur frá Blöndustöð og af Fljótsdalslínu 2 í austur af Fljótsdalsstöð.

„Til marks um hve mikil áhrif takmarkanir á flutningskerfi hafa má nefna að um 1600 GWst af orku runnu ónýttar til sjávar frá Fljótsdalsstöð sl. sumar. Aukin flutningsgeta um sniðið hefði líklega komið í veg fyrir skerðingar núna og um leið tryggt að ekki gengi jafn hratt á Þórisvatn og raun ber vitni.“