Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur skipað starfshóp um stefnu fyrir virka ferðamáta og smáfarartæki.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en starfshópnum er falið að meta stöðu virkra ferðamáta og smáfarartækja á Íslandi ásamt valkostum sem til staðar eru til að efla ferðamátana.

„Starfshópurinn mun móta stefnu og aðgerðaáætlun, ásamt mælanlegum markmiðum fyrir göngu, hjólreiða- og smáfarartæki sem stuðlað geti að bættu umhverfi fyrir þá ferðamáta. Starfshópnum er ætlað að eiga samráð við helstu hagsmunaaðila í vinnu sinni og skila niðurstöðum eigi síðar en 31. janúar 2025,“ segir á síðu Innviðaráðuneytisins.

Mikil aukning hefur átt sér stað í notkun smáfarartækja undanfarin misseri en þar má nefna fyrirtæki á borð við Hopp, Zolo og Reykjavík Rollers.

Starfshópurinn er skipaður Sigrúnu Helgu Lund, Gunnari Geir Gunnarssyni, Dóru Björt Guðjónsdóttur, Sesselju Traustadóttur og Katrínu Halldórsdóttur. Hrefna Hallgrímsdóttir, starfsmaður innviðaráðuneytisins, mun þá einnig starfa með hópnum.