Ný stjórn hjá Íslandspósti var kjörin á aðalfundi ríkisfyrirtækisins á mánudaginn síðasta. Miklar breytingar urðu á stjórninni en fjórir einstaklingar koma nýir inn í stjórnina.
Í stjórn Íslandspósts voru kjörin Pétur Már Halldórsson, Hrefna Kristín Jónsdóttir, Einar S. Magnússon, Rakel Heiðmarsdóttir og Sara Sigurðardóttir. Sara var varamaður í stjórn undanfarið starfsár.
Petur Már, sem var framkvæmdastjóri Nox Medical á árunum 2011-2023, hefur verður skipaður formaður stjórnar.
Í stjórn Póstsins síðasta starfsárið sátu Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir (formaður), Gísli Brynjólfsson, Baldvin Ólason og Guðný Hrund Karlsdóttir.
Gera má ráð fyrir að miklar breytingar á stjórninni megi rekja til nýrra reglna um val á einstaklingum til stjórnarsetu í ríkisfyrirtækjum, sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra setti í síðasta mánuði. Hann skipaði í byrjun mánaðar valnefndir sem fengu það verkefni að tilnefna tvo aðila fyrir hvert stjórnarsæti, en ráðherra velur úr þeim hópi í stjórnirnar.
Aðalfundur Isavia fór fram í dag og var þar einnig kjörin ný stjórn. Fjórir einstaklingar komu nýir inn í stjórn Isavia, þar á meðal Steinþór Pálsson sem tók við stjórnarformennsku af Kristjáni Þór Júlíussyni.