Umsagnarferli Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Síldarvinnslunnar á helmingshlut í Ice Fresh Seafood af Samherja er hafið en eftirlitið segir í tilkynningu að með kaupunum sé tilefni til að skoða sérstaklega tengsl félaganna tveggja.
Viðskiptin felast í sér að Síldarvinnslan kaupir núverandi hluti Samherja fyrir 10,7 milljónir evra, sem samsvarar rúmlega 1,5 milljörðum króna, og hins vegar útgáfu nýs hlutafjár í Ice Fresh Seafood að fjárhæð 21,5 milljónir evra.

„Tilkynningarskyldir samrunar eiga sér stað samkvæmt samkeppnislögum þegar breytingar verða á yfirráðum. Eitt af þeim atriðum sem þarfnast nánari rannsóknar í þessu máli eru tengsl Samherja og Síldarvinnslunnar, bæði fyrir og eftir samrunann, þar með talið hvaða áhrif kaup Síldarvinnslunnar og sameiginleg yfirráð með Samherja í Ice Fresh Seafood hafa í því samhengi,” segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.
„Verður það því sérstakt athugunarefni hvort slík tengsl séu til staðar, eða séu að myndast með kaupunum, að líta beri á félögin sem eitt og sama fyrirtækið (í samkeppnisrétti nefnt ein efnahagsleg eining), þ. e. hvort samband þeirra sé svo náið að það jafngildi einni efnahagslegri einingu en ekki samstarfi sjálfstæðra keppinauta,” segir þar enn fremur.
Fjárfesting SVN í Ice Fresh Seafood nemur um 5 milljörðum króna en félagið kaupir einnig fjögur erlend félög fyrir rúma 2 milljarða í viðskiptunum.
Samherja er eigandi að 30,06% hlut í Síldarvinnslunni og Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, er jafnframt forstjóri Samherja.
Samkvæmt tilkynningu félagsins í haust vék Þorsteinn Már úr stjórn Síldarvinnslunnar hf. við meðferð málsins og kom ekki að ákvörðunartöku vegna þess.
Samkeppniseftirlitið hefur áður fjallað um tengsl milli Síldarvinnslunnar og Samherja, m. a. í ákvörðunum árið 2021 og 2022 þar sem eftirlitinu er gerð grein fyrir stjórnunar-, eignar- og viðskiptatengslum milli Síldarvinnslunnar og Samherja, ásamt Gjögur hf./Kjálkanesi hf.
„Hafa þessi atriði verið talin veita vísbendingu um að stofnast hafi mögulega til yfirráða yfir Síldarvinnslunni umfram það sem áður hefur komið fram í tilkynningum til Samkeppniseftirlitsins. Ekki hefur hins vegar verið talin þörf á því að leiða þetta til lykta í fyrri samrunamálum,“ segir í tilkynningu frá eftirlitinu.