Listaháskóli Íslands hefur ákveðið að afnema skólagjöld og munu breytingarnar taka gildi frá og með hausti 2024. Í tilkynningu frá skólanum segir að LHÍ hafi lengi talað fyrir því að afnema gjöldin og eru breytingarnar því mikið fagnaðarefni.

Fyrr í dag tilkynnti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að skólastjórnendum sjálfstætt starfandi háskóla standi til boða að fá óskert fjárframlög frá ríkinu gegn afnámi skólagjalda.

Um er að ræða þrjá sjálfstætt starfandi háskóla: Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Bifröst og Listaháskóla Íslands.

„Þetta eru stór tímamót í sögu skólans og mikilvægasta jafnréttismál hvað varðar aðgengi nemenda að háskólanámi í listum hér á landi. Við höfum lengi bent á það ójafnræði sem felst í því að nám í listum sé bundið skilyrðum um skólagjöld umfram nám í öðrum háskólagreinum. Í þessu felast jafnari tækifæri til aðgengis að listnámi óháð efnahag sem er mikið fagnaðarefni. Við væntum þess að ákvörðunin feli í sér enn fjölbreyttari hóp umsækjenda, og þar af leiðandi hóp nemenda, á komandi árum,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands