Ákvörðun ESA um að hefja formlega rannsókn á því hvort Landsvirkjun hafi brotið gegn samkeppnisreglum EES kemur Landsvirkjun á óvart. Fyrirtækið telur að rannsóknin muni ekki leiða neitt óeðlilegt í ljós.

Eftirlitsstofnunin sendi frá sér tilkynningu fyrir skemmstu þar sem fram kom að til skoðunar væri hvort Landsvirkjun hafi brotið gegn samkeppnisreglum með því að neita að afhenda raforku til fyrirtækja sem leitast eftir því að framleiða vetni og/eða rafeldsneyti á Íslandi.

Í tilkynningu sem birtist skömmu síðar frá Landsvirkjun segir að fyrirtækinu hafi borist erindi frá ESA í júní 2024 þar sem óskað var eftir gögnum og upplýsingum um hugsanlega raforkusölu Landsvirkjunar til nýrra viðskiptavina. Þeirri fyrirspurn hafi verið svarað í ágúst sama ár.

Ákvörðun ESA í dag komi á óvart en erfið staða í orkumálum sé ástæða þess að ekki hafi verið unnt að selja raforku til vetnis- eða rafeldsneytisverkefna. Landsvirkjun hafi þurft að skerða bæði afl og orku til núverandi viðskiptavina á undanförnum árum og að sama skapi hafi tafir í leyfisveitingaferli nýrra virkjana komið í veg fyrir að unnt sé að styðja við mörg ný verkefni.

„Landsvirkjun hefur þurft að tilkynna fjölmörgum aðilum með mjög áhugaverð verkefni að ekki sé unnt á þessu stigi að verða við beiðni um orkukaup af þessum ástæðum. Við útilokum ekki að það verði mögulegt í framtíðinni og mun það m.a. ráðast af uppbyggingu nýrra virkjana. Það kemur því verulega á óvart ef nálgun okkar felur í sér brot á EES-samningi þegar hvorki er til orka eða afl í kerfinu og því ekki hægt að verða við flestum beiðnum um sölu,“ segir í tilkynningunni.