Félag atvinnurekenda og VR ásamt Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) hafa skrifað undir kjarasamning sem er sagður í öllum meginatriðum samhljóða samningi VR og LÍV við Samtök atvinnulífsins sem undirritaður var í gær.

Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki stjórnar félagsins og verður kynntur fyrir félagsmönnum á fundi á fimmtudag.

Samkvæmt samningnum hækka laun um 6,75% frá 1. nóvember sl. Hámarkslaunahækkun getur þó orðið 66.000 krónur á mánuði. Með samningnum er hagvaxtarauka vegna ársins 2022, sem hefði átt að koma til greiðslu 1. maí á næsta ári, flýtt til 1. nóvember. Desemberuppbót verður 103 þúsund krónur fyrir fullt starf á árinu 2023 og Orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí næstkomandi verður 56 þúsund krónur.

Kalla eftir afnámi og lækkun tolla

FA og samtök verslunarmanna undirrituðu sérstaka bókun við samninginn, svohljóðandi:

„Aðilar sammælast um að óska eftir því við stjórnvöld að farið verði í vinnu við að afnema og lækka tolla í þágu neytenda. Lækkun tolla er ein skilvirkasta leiðin til að bæta hag launþega. Að mati samningsaðila væri góð byrjun að afnema tolla sem vernda enga hefðbundna innlenda landbúnaðarframleiðslu.“

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segir í tilkynningu á vef samtakanna að stjórnvöld hafi misst af tækifæri til að tryggja neytendum frekari kjarabætur og lækka matvælaverð með því að kveða á um tollalækkanir í yfirlýsingu sinni í gær.

„Við og viðsemjendur okkar beinum því til ríkisstjórnarinnar að skoða þau mál. Það er hægt að byrja á tollunum sem vernda enga hefðbundna innlenda framleiðslu, en þeir eru fjölmargir,“ segir Ólafur.