Nettó áhrif uppgjörs ÍL-sjóðs, gamla Íbúðalánasjóðs, á skuldahlutföll A hluta ríkissjóðs (skilgreining skv. Maastricht) eru lækkun um rúmlega 5% af vergri landsframleiðslu, að því er segir í tilkynningu Lánamála ríkisins.

Eigendur HFF-bréfa ÍL-sjóðs samþykktu á fundi 10. apríl síðastliðinn tillögu um uppgjör sjóðsins en 81,4% eigenda samþykktu tillöguna. Í framhaldi var óskað eftir heimild í frumvarpi til fjáraukalaga til að ganga til uppgjörs í samræmi við tillöguna og samþykkti Alþingi frumvarpið á dögunum.

Uppgjör skuldbindinga ÍL-sjóðs fer fram þann 12. júní. Í tengslum við uppgjörið mun ríkissjóður gefa út níu nýja flokka ríkisbréfa.

Í uppgjörinu felst að kröfur samkvæmt HFF-bréfum, sem metnar eru á 651 milljarð króna, verði efndar með því að ÍL-sjóður og íslenska ríkið afhendi til uppgjörs ný ríkisskuldabréf að andvirði 540 milljarða króna, önnur verðbréf í eigu ÍL-sjóðs að andvirði 38 milljarða, og 73 milljarða króna í reiðufé, þar af evrur að andvirði 55 milljarðar króna.

Ríkið greiðir upp lán að fjárhæð 238 milljarðar

Lánamál ríkisins segja að með afhendingu umræddra bréfa greiði ríkissjóður upp lán sem ÍL-sjóður veitti ríkissjóði á árunum 2020 og 2021, samtals að fjárhæð 238 milljarðar króna.

Við uppgjörið mun ríkissjóður fá afhentar aðrar eignir ÍL-sjóðs en þær sem verða nýttar í uppgjörinu; þ.á.m. skuldabréf Húsnæðissjóðs, lánasafn og skuldabréf Bríetar leigufélags, samtals að fjárhæð um 22 milljarðar króna.