Sleggjan, systurfélag Öskju, heitir nú Landfari og er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi.

Í tilkynningu segir að nýja heiti fyrirtækisins sé liður í þeim breytingum sem unnið hefur verið að á síðustu mánuðum til að mæta framtíðarþörfum viðskiptavina og styrkja stefnu fyrirtækisins til framtíðar.

Starfsemi Landfara er í Desjamýri 10 í Mosfellsbæ en þar eru skrifstofur og söludeild nýrra Mercedes-xvöru- og hópferðabíla, auk þjónustuverkstæðis, varahlutalagers og verslunar í tæplega 2500 fermetra húsnæði.

Landfari er einnig með starfsemi í Klettagörðum 4 í Reykjavík en þar er lögð áhersla á viðgerðir á eftirvögnum. Starfsemin þar mun flytjast í stærra húsnæði að Klettagörðum 5 í sumar.

„Það eru spennandi tímar fram undan hjá Landfara. Við erum að stórefla þjónustuna með stærra húsnæði í Klettagörðum og nýrri staðsetningu að Álfhellu 15 í Hafnarfirði, en þar verður opnað fullbúið verkstæði fyrir atvinnubíla 1. júní næstkomandi,“ segir Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara.