Íslandshótel og Skógarböðin hafa slitið samstarfi um uppbyggingu og rekstur 120 herbergja hótels við Skógarböðin í Eyjafirði sem áætlað var að opna á vormánuðum 2026. Viljayfirlýsing um samstarf var undirrituð í ársbyrjun en reiknað var með fjárfestingu upp á um fimm milljarða króna.

Viðræður Íslandshótela og eigenda Skógarbaðanna um byggingu og rekstur hótelsins hafa staðið yfir síðustu mánuði og slitu Íslandshótel því samstarfi í lok júlí, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

„Þrátt fyrir góða samvinnu teljum við að of mikið beri í milli hvað hugmyndir um framhaldið varðar og því sé ekki grundvöllur fyrir frekara samstarfi af okkar hálfu,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.

Íslandshótel hyggjast nú setja aukinn kraft í önnur verkefni, þar á meðal byggingu nýs hótels á svokölluðum Sjallareit á Akureyri.

Skógarböðin leita að samstarfsaðilum

Skógarböðin leita nú að nýjum samstarfsaðilum, bæði fjárfestum fyrir fasteign og rekstraraðilum hótels.

„Hlutirnir gengu ekki jafn hratt fyrir sig og vonast var eftir. Byggingarleyfi og annar undirbúningur dróst en við höldum okkar striki og okkar markmið er eftir sem áður að reisa glæsilegt hótel við Skógarböðin,“ segir Sigríður María Hammer, stjórnarformaður Skógarbaðanna.