Afköst í fiskvinnsluhúsum Samherja dragast verulega saman þegar keyptur er afli af strandveiðibátum til vinnslu, að því er segir í frétt á vef útgerðarfélagsins. Þorskur frá smábátum kalli á miklu meiri tíma í snyrtingu og vinnslu sem leiði til sóunar og lakari launa til starfsfólks.

Framleiðslustjóri Útgerðarfélags Akureyringa (ÚA), Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, segir að þegar unninn er fiskur frá togurum eru afköstin gjarnan í kringum ellefu tonn á klukkustund en þau falli niður í sex tonn þegar smábátafiskur er unninn.

„Það segir sig sjálft að þessi mikli munur hefur margvísleg áhrif, meðal annars á launin, því bónusinn lækkar þegar afköstin dragast saman. Ég skil vel að starfsfólkið sé ekki sátt við stöðuna en þetta er óhjákvæmilegt því við erum háð því að kaupa hráefni á mörkuðum til að vinna afurðir allan ársins hring og um þessar mundir er hlutfall hráefnis frá smábátum miklu hærra á mörkuðum.“

Samherji segir að frá því strandveiðitímabilið hófst í vor hafi hlutfall fisks frá smábátum hækkað verulega á mörkuðum. Fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík og Akureyri vinni að jafnaði um 80 tonn af fiski á dag í hvoru húsi.

„Nærri lætur að um fimmtán prósent hráefnis til vinnslu séu keypt á mörkuðum til að tryggja vinnslu og afhendingu afurða allan ársins hring.“

Mun fleiri handtök og lægri bónus

Hrefna Þorbergsdóttir, sem hefur starfað í 48 ár hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, segir hráefnið frá smábátum oft á tíðum fyrir neðan allar hellur. Hún segir að oft þurfi að skera í burtu stór stykki úr flökum vegna skemmda.

„Það verður bara að segja hlutina eins og þeir eru. Hráefnið getur verið eins og svart og hvítt og handavinnan á flæðilínunum er miklu meiri þegar smábátafiskur er unninn. Auk þess er fiskurinn frá smábátum ekki nógu vel ísaður sem bitnar á geymsluþolinu,“ segir Hrefna.

Hún segir lakari afköst koma eðlilega niður á laununum, því bónusinn hjá starfsfólkinu lækkar. Þá fái ríkið lægri skatta og sveitarfélög lægra útsvar.

„Það er ekki bara ég sem er pirruð vegna þessa, ég held að við séum það allar á vinnslulínunum. Handtökin vegna afla frá smábátum eru svo miklu fleiri miðað við fisk sem er veiddur af togara. Þar eru gæðin allt önnur og betri. Munurinn er sláandi,“ segir Hrefna.