Nvidia og Hewlett Packard Enterprise tilkynntu í dag að vinna væri hafin á nýrri ofurtölvu sem fyrirtækin munu smíða saman í Þýskalandi. Á vef Reuters segir að tölvan muni koma til með að þróa næstu kynslóð örgjörva frá Nvidia.

Ofurtölvan, sem ber heitið Blue Lion, verður aðgengileg vísindamönnum snemma árs 2027 og mun notast við Vera Rubin-örgjafa frá Nvidia.

Fyrirtækin tilkynntu verkefnið í dag á ofurtölvuráðstefnu í Hamborg en hún kemur jafnframt í kjölfar svipaðrar tilkynningar Nvidia um smíði á Lawerence Berkely National-tilraunastofunni sem verður í Bandaríkjunum.

Nvidia greindi einnig frá því að önnur ofurtölva fyrirtækisins, Jupiter, sem er í notkun hjá þýsku rannsóknarstofnuninni Forschungszentrum, væri orðin hraðasta tölva Evrópu.

Þróunin er sögð vera merki um aukinn áhuga evrópskra stofnana sem stefna að því að verða samkeppnishæfari á sviði ofurtölva og vilja keppa við Bandaríkin á ýmsum vísindasviðum eins og líftækni og loftslagsrannsóknum.