Advania vinnur nú að smíði séríslensks gervigreindarskýs sem félagið segir að muni opna fyrir raunverulega hagnýtingu gervigreindar í rekstri og nýsköpun íslenskra fyrirtækja og stofnana. Gervigreindarskýið er samstarfsverkefni Advania og Nvidia.
„Með tilkomu þess fá fyrirtæki aðgang að gervigreindarskýinu, sem hýst er hér á landi. Uppsetning og högun tryggir að gagnavinnsla fyrirtækja og rýni á viðkvæmum gögnum nýtist eingöngu eiganda gagnanna, sem getur styrkt samkeppnisstöðu - ýmist innanlands eða á alþjóðavettvangi,“ segir í fréttatilkynningu Advania.
„Aðgengi að öflugum tækni-inniviðum er forsenda fyrir samkeppnihæfni íslenskra fyrirtækja og raunar Íslands alls. Með íslensku gervigreindarskýi, sem er hýst og rekið í íslenskum gagnaverum, hjálpum við viðskiptavinum að grípa strax þau tækifæri sem tæknin skapar, hvort sem er í daglegum rekstri eða nýsköpun. Það er mikilvægt að þau geti skalað notkunina eftir sínum þörfum og með skýinu verður slíkt mögulegt,“ segir Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania.
Advania segir að þessi lausn sé liður í þeirri vegferð að tryggja stafrænt fullveldi Íslands (e: sovereign AI). Í alþjóðlegri umræðu um gervigreind sé sífellt meiri áhersla lögð á mikilvægi þess að tækni-innviðir og hýsing gagna séu sterk í hverju landi fyrir sig og þjóni hagsmunum þjóða, stofnanna og fyrirtækja.
„Sú hefur ekki verið raunin hingað til. Gervigreindarský Advania mun þannig hýsa öll gögn á Íslandi með möguleika á landfræðilegum aðskilnaði innanlands, sem tryggir öryggi þeirra enn fremur.“
„Við erum spennt fyrir áframhaldandi samstarfi við Advania og hlökkum til að styðja við uppbyggingu á íslensku gervigreindarskýi sem tekur mið af þörfum Íslands. Þjóðin er tæknivædd, skapandi og hefur jákvætt viðhorf til tækniframfara. Það eru spennandi tímar framundan, með gríðarlegum tækifærum fyrir þá sem velja að nýta tæknina,“ er haft eftir Linda Malm, svæðisstjóra Nvidia á Norðurlöndum.