Bandaríski kjötframleiðandinn Smithfield Foods hefur lokið frumútboði og munu viðskipti með bréf félagsins hefjast á Nasdaq í Bandaríkjunum í dag undir merkinu SFD. WSJ greinir frá.
Smithfield Foods vill að fyrirtækið verði þekkt sem bandarískt fyrirtæki en síðan 2013 hefur það starfað sem dótturfyrirtæki WH Group í Hong Kong.
Kaupin árið 2013 hljóðuðu upp á 4,7 milljarða dala og voru ein stærsta yfirtaka kínversks fyrirtækis á bandarísku fyrirtæki á þeim tíma. WH Group heldur eftir 90% hlut í Smithfield en félagið verður þó áfram með aðsetur í Virginíu.
„Við erum bandarískt fyrirtæki, með bandarískt stjórnarteymi og erum búin til í Bandaríkjunum,“ segir Shani Smith, framkvæmdastjóri Smithfield síðan 2021. Hann segir að með uppboðinu verði auðveldara að koma þessum staðreyndum til skila.
Smithfield var stofnað árið 1936 og með yfirtökum varð það að stærsta svínakjötsframleiðanda Bandaríkjanna. Vörumerkið er þekkt fyrir beikon og skinkur en það rekur einn svínabæi frá Utah til Norður-Karólínu.
WH Group keypti Smithfield til að hjálpa til við að bæta tækni sína og efla starfsemi sína í Kína. Sameinaða fyrirtæki WH Group og Smithfield fór síðan á markað árið 2014.
Að sögn forstjórans hefur fyrirkomulagið verið gott fyrir Smithfield en Kína hefur verið góður markaður fyrir kjötvörur sem njóta ekki mikilla vinsælda í Bandaríkjunum, eins og höfuð og fætur svína.
Síðan þá hafa áhyggjur af þátttöku Kína í bandarísku efnahagslífi aukist og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti endurtekið hótanir sínar um tolla á innfluttar vörur frá Kína. Aðrir stjórnmálamenn hafa hvatt til takmarkana á kínversku eignarhaldi.