Smurfit Kappa, breski pappírs- og pappa­risinn, mun af­skrá sig í Kaup­höllinni í Lundúnum og skrá sig í Kaup­höllina í New York sem hluti af 20 milljarða dala sam­einingu fyrir­tækisins við banda­ríska keppi­naut sinn Westrock

Smurfit bætist þar við í hóp stór­fyrir­tækja sem hafa flúið bresku Kaup­höllina á síðustu mánuðum. Byggingar­vöru­risinn Fergu­son og sements­fram­leiðandinn CRH færðu skráningu sína ný­verið hinu megin við At­lants­hafið.

ARM valdi Nasdaq

Á sama tíma styttist í að hálf­leiðar­a­fram­leiðandinn ARM, vonar­stjarna breskra tækni­fyrir­tækja, skrái sig á Nas­daq eftir að hafa verið í einka­eigu árum saman.

Smurfit Kappa og Westrock verða skráð sam­eigin­lega sem Smurfit Westrock í NYSE.

Hluta­bréf Smurfit Kappa féllu um 10% í Kaup­höllinni í Lundúnum eftir til­kynninguna á meðan hluta­bréf Westrock hinum megin við hafið hækkuðu um 8%.