Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnaði Snæfellsstofu á Skriðuklaustri sl. fimmtudag. Er þar um að ræða nýja gestastofa fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs byggð eftir verðlaunateikningu Arkis arkitekta. Framkvæmdir við Snæfellsstofu hófust fyrir rúmu ári en fyrsta skóflustunga að byggingunni var tekin um miðjan apríl 2009. Alls er Snæfellsstofa um 700 fermetrar að stærð og nemur kostnaður við byggingu hennar um 350 milljónum króna. Er kostnaður samkvæmt þeim áætlunum sem gerðar voru að teknu tilliti til verðlagsþróunar. Er þetta jafnframt fyrsta vistvænt vottaða byggingin á Íslandi samkvæmt BREEAM umhverfisstaðli.

„Opnun Snæfellsstofu er mikilvægur áfangi í uppbygginu Vatnajökulsþjóðgarðs en með henni er stigið stórt skref í fræðslu- og upplýsingamálum þjóðgarðsins. Gestastofum þjóðgarðsins fjölgar úr tveimur í þrjár og nú verða starfandi gestastofur á þremur af fjórum rekstrarsvæðum Vatnjökulsþjóðgarðs,“ sagði Svandís Svavarsdóttir við þetta tækifæri.

Á fimmtudag var einnig opnuð í Snæfellsstofu umhverfisfræðslusýningin „Veraldarhjólið“ sem fjallar um hringrás náttúrunnar með áherslu á samspil gróðurs og dýralífs á svæðinu. Auk sýningarinnar hýsir Snæfellsstofa upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir ferðafólk og minjagripaverslun auk þess sem þar verða skrifstofur og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk þjóðgarðsins.

Með stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs 7. júní 2008 tók gildi friðlýsing svæðisins. Markmiðið friðlýsingar Vatnajökuls og helstu áhrifasvæða hans er að vernda náttúru svæðisins, s.s. landslag, lífríki og jarðmyndanir og menningarminjar þess. Einnig að gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru svæðisins, menningar þess og sögu. Góð samvinna hefur tekist milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu þjóðgarðsins. Lokun vegslóða í landi þjóðgarðsins að skipun ráðherra nýverið hefur þó vakið upp hörð mótmæli að undanförnu og spurningar um hvort meina eigi almenningi greiðan aðgang að þessu svæði.