Bandaríska hlutabréfavísitalan S&P 500 hefur hækkað um meira en hálft prósent það sem af er degi og náði í fyrsta sinn síðan í febrúar nýjum hæðum, samkvæmt frétt The Wall Street Journal.

Vísitalan hefur nú hækkað um meira en 23% frá því að hún náði sínu lægsta gildi í ár þann 8. apríl síðastliðinn. Hlutabréfamarkaðir höfðu þá lækkað umtalsvert eftir að Donald Trump tilkynnti um víðtæka tolla í byrjun apríl.

Í umfjöllun WSJ segir að útlit sé fyrir að ef S&P 500 vísitalan endar í methæðum í dag, þá verði hækkun vísitölunnar undanfarna þrjá mánuði söguleg. Þessir 89 dagar yrðu stysta tímabil sögunnar fyrir vísitöluna að rétta úr kútnum og ná nýjum hæðum eftir að hafa lækkað um a.m.k. 15% þar áður.

Viðskiptamiðilinn segir að hlutabréf hafi hækkað undanfarna daga eftir að „brothætt vopnahlé“ milli Ísraels og Írans leiddi til lækkunar á olíuverði og ýtt undir bjartsýni um að hægt yrði að forðast langvarandi átök í Miðausturlöndum.

Fjárfestar hafi einnig tekið vel í viðræður um áframhaldandi tollaviðræður milli Bandaríkjanna og helstu viðskiptalanda þeirra, þar á meðal Kína, Kanada og Evrópusambandsins.