Ræstingarfyrirtækin Sólar ehf. og Mánar ehf. hafa náð samkomulagi um að sameina félögin undir nafni Sólar. Í tilkynningu segjast félögin starfa á virkum samkeppnismarkaði þar sem eftirspurn frá viðskiptavinum eftir víðtækri gæða- og heildarþjónustu fari vaxandi.
Sólar eru eitt af stærstu ræstingarfyrirtækjum landsins með um 500 starfsmenn sem starfa við almenn þrif og sérverkefni. Sólar velti 3.060 milljónum króna árið 2022 sem var yfir 14% aukning frá fyrra ári. Félagið hagnaðist um 49,5 milljónir árið 2022 samanborið við 117,9 milljónir árið áður. Eignir Sólar voru bókfærðar á 908 milljónir í árslok 2022 og eigið fé var um 323 milljónir.
Sólar er í 33,3% eigu Ólafs Páls Einarssonar, 33,3% eigu Gunnars Ragnars Einarssonar, 28,3% eigu Daiva Léliené og 5% eigu Þórsteins Ágústssonar samkvæmt síðasta ársreikningi félagsins.
„Við teljum að samlegðaráhrif sé að finna í áherslum og rekstri fyrirtækjanna sem hvort um sig hefur sína styrkleika. Við erum sífellt að huga að leiðum til að þjónusta viðskiptavini okkar með betri og skilvirkari hætti en áður, með sérstaka áherslu á umhverfisvitund. Við bíðum spennt eftir því að fá Kára framkvæmdastjóri Mána og hans öfluga starfsfólk til liðs við okkur“, segir Einar Hannesson, framkvæmdastjóri Sólar.
Mánar vaxið hratt frá stofnun
Mánar, sem var stofnað árið 2016 undir nafninu Hreinsi ehf. af hjónunum Kára Þráinssyni og Birnu Bogadóttur, velti 210 milljónum króna árið 2022 sem var 67% aukning frá fyrra ári. Umfang starfseminnar hefur vaxið töluvert á hverju ári frá stofnun. Afkoma félagsins var neikvæð um 12,6 milljónir árið 2022.
„Mánar hafa vaxið jafnt og þétt undanfarin ár með ákveðinni sérhæfingu til dæmis í ýmissi þjónustu við húsfélög. Við höfum lagt áherslu á hátt þjónustustig og snöggan viðbragðstíma. Með samrunanum verður til enn öflugra félag með aukna samkeppnishæfni og sterkari innviði“ er haft eftir Kára Þráinssyni, eiganda og framkvæmdastjóra Mána.
Eignir Mánar í árslok 2022 námu 53,5 milljónum króna og eigið fé var neikvætt um 21,8 milljónir.