Sala Tesla í Evrópusambandslöndunum féll verulega í maí líkt og síðustu mánuðina á undan. Skráningar á nýjum bílum frá Tesla féllu um 40,5% í 8.729 bíla í Evrópusambandslöndunum í síðasta mánuði, samkvæmt tölum frá samtökum evrópskra bifreiðaframleiðenda (ACEA).
Hlutabréf Tesla hafa lækkað um 4,7% það sem af er degi á Wall Street eftir að hafa lækkað mest um 5,2%.
Séu hin Evrópulöndin tekin með í reikningin lagast staðan nokkuð fyrir Tesla. Þau eru Bretland, Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss en í Evrópu allri dróst salan saman um nær 28% niður í 13.863 bíla.
Þessi samdráttur bætist við röð vonbrigðasölumánaða fyrir fyrirtækið. Skráningar Tesla í ESB-löndunum féllu um tæp 53% í apríl, 36% í mars, 47% í febrúar og 50% í janúar. Síðast þegar Tesla sá aukningu í sölu í ESB- löndunum var það í desember, og var aðeins 5,9% vöxtur.
Sölusamdrátturinn í maí kemur þrátt fyrir merki um að rafbílamarkaðurinn sé að glæðast. Sala rafbíla sem ganga eingöngu fyrir rafhlöðu jókst um 25% á ársgrundvelli í ESB-löndunum en í Þýskalandi einu jókst hún um nær 45%.
Kínverjar sækja verulega á
Sá framleiðandi sem óx næst hraðast samkvæmt samtökum evrópskra bílaframleiðenda var kínverski ríkisbílaverksmiðjan SAIC Motors.
Fyrirtækið hefur nýtt sér breska bílamerkið sitt til að ryðja sér braut í evrópska markaðnum. Í maí seldi SAIC um tvöfalt fleiri bíla en Tesla um alla Evrópu.
En BYD – sem fram til skamms var of lítið til að rata inn á lista ACEA – er að vaxa enn hraðar. Samkvæmt gögnum frá JATO Dynamics, seldi kínverski risinn einungis 40 bílum færri en Tesla í maí, eftir að hafa selt meira en Tesla í fyrsta sinn í apríl.