Leonard Lauder, sonur hins fræga snyrtivörufrumkvöðuls, Estee Lauder, er látinn. Hann var 92 ára að aldri en gekk til liðs við fyrirtæki foreldra sinna árið 1958 eftir að hafa lokið herþjónustu og varð meðal annars framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Á vef Sky News segir að Leonard hafi gegnt lykilhlutverki í að hjálpa Estee Lauder við að færa sig frá því að vera fyrirtæki sem seldir örfáar vörur í bandarískum verslunum í fyrirtæki sem seld fjölda vörumerkja á alþjóðavísu.
Leonard stofnaði meðal annars vörumerkin Clinique og Aramis og var hann talinn hæfur samningsmaður sem náði meðal annars eignarhaldi á Bobbi Brown og Jo Malone í London.
Sonur hans, William, starfar enn innan fjölskyldufyrirtækisins sem stjórnarformaður og segir að breytingarnar sem faðir hans stóð fyrir hafi verið gríðarlegar. „Alla ævi vann faðir minn að því að byggja upp og umbreyta snyrtivöruiðnaðinum.“
Leonard fæddist í New York árið 1933 og samkvæmt blaðinu Forbes námu eignir hans 25,5 milljörðum dala árið 2021.