Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja það blasa við að áform ríkisstjórnarinnar um 48 daga til strandveiða séu fjarri því að vera studd fullnægjandi rökum.

„Með áformunum á að knýja fram aukinn afla til strandveiða án tillits til gildandi laga, þeirrar meginhugsunar sem fiskveiðistjórnunar- og aflamarkskerfið er grundvallað á, og þess hvaða áhrif það getur haft,“ segir í umsögn SFS við standveiðifrumvarp stjórnvalda.

Tvöfalda þurfi afla til strandveiða

SFS segir það liggja fyrir að veruleg aukning þurfi að eiga sér stað á þeim afla sem ráðstafa skal til strandveiða. Með varfærnu mati megi gera ráð fyrir tvöföldun þess magns sem ráðstafað er til veiðanna út frá þeim fjölda báta sem hafa stundað strandveiðar á umliðnum árum.

Mynd tekin úr umsögn SFS.
Mynd tekin úr umsögn SFS.

Í umsögninni lýsa SFS strandveiðum sem efnahagslegri sóun og er m.a. vísað í greinargerð Daða Más Kristóferssonar, núverandi fjármálaráðherra, til atvinnuveganefndar frá árinu 2012. Þar segir eftirfarandi:

„Strandveiðar eru í eðli sínu ólympískar veiðar en reynsla af slíkum veiðum, hér á landi sem og annars staðar, er mjög á einn veg. Þær leiða til kapphlaups um afla sem hækkar sóknarkostnað, lækkar verðmæti afla og hvetur til brottkasts meðafla […]

Of margir stunda veiðarnar og rentunni, sem annars hefði orðið til, er sóað í offjárfestingu. Aukið umfang strandveiða getur aðeins tímabundið lagað afkomu þeirra sem stunda þær. Bætt afkoma laðar einfaldlega enn fleiri að veiðunum með sömu afleiðingum og nú eru komnar á daginn. Enn meiri rentu er sóað í offjárfestingu.“

SFS segja það mikið áhyggjuefni að ríkisstjórnin áformi stórauknar strandveiðar „með tilheyrandi tekjutapi fyrir fiskvinnslur og fiskverkafólk, sjómenn í heilsársstörfum, ríki og sveitarfélög“. Hin efnahagslegu áhrif verði ekki síst mikil sökum þess virðisauka sem fer af landi brott í formi aukins útflutnings á óunnum afla.

„Það gengur þvert á yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar um að auka þurfi verðmætasköpun í atvinnulífinu. Þá blasir við samkvæmt greiningunni að upphafleg markmið stjórnvalda með strandveiðum um nýliðun og aukna byggðafestu hafa ekki náðst.“

SFS segjast gera sér grein fyrir því að strandveiðar í einhverri mynd eru komnar til að vera „þrátt fyrir að í þeim felist sóun á verðmætum og að engum þeim markmiðum sem upphaflega var að stefnt hafi verið náð“. Það blasi þó við að áformin stjórnvalda séu þó illa rökstudd.

Samtökin vara við því að gjörbreytt rekstrarumhverfi sjávarútvegs „hvort sem það felst í hærra veiðigjaldi, auknum strandveiðum eða nýju íþyngjandi regluverki, án samráðs við greinina eins og virðist vera raunin hjá stjórnvöldum, muni draga úr fjárfestingu og veikja tengdar atvinnugreinar“.

„Slíkt mun óhjákvæmilega leiða til minni nýsköpunar og verðmætasköpunar í íslensku atvinnulífi.“