Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A-hluta borgarinnar verði jákvæð um 1,7 milljarða króna. Til samanburðar gerir útkomuspá ráð fyrir að afkoma A-hlutans verði jákvæð um 531 milljón í ár, sem yrði um 5,5 milljarða króna jákvæður viðsnúningur frá fyrra ári.

Í fimm ára áætlun borgarinnar fyrir árin 2025-2029 er gert ráð fyrir að rekstur borgarinnar fari áfram batnandi á næstu árum.

„Batnandi rekstrarafkomu má m.a. rekja til árangurs af aðgerðaráætlun borgarinnar til að mæta hallarekstri. Enn er talsvert um áskoranir í rekstrarumhverfi fagsviða og því er mikilvægt að gætt sé aðhalds í rekstri og fjármunum forgangsraðað á grunni lögskyldra verkefna,“ segir í fjárhagsáætluninni.

Mynd tekin úr fjárhagsspánni.

Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A- og B- hluta verði jákvæð um 14,3 milljarða króna á árinu 2025, samanborið við áætlaðan afgang upp á 8,1 milljarð krónaí ár miðað við útkomuspá.

Einar: Verkefninu ekki lokið

„Fjárhagsáætlunin sem við kynnum í dag sýnir að við höfum með samhentum hætti náð miklum árangri við krefjandi ytri aðstæður,” segir Einar Þorsteinsson borgarstjóri í tilkynningu á vef borgarinnar. „Lykillinn að því að geta veitt borgarbúum góða þjónustu er að reka borgina með ábyrgum hætti.”

Einar segir að skýrt rekstraraðhald sé að skila árangri. Meginmarkmiðið sé að standa vörð um grunnþjónustuna en leita hagræðingartækifæra inn á við. Þá hafi aðhaldsaðgerðir m.a. skilað sér í því að stöðugildi borgarinnar standi í stað milli ára þrátt fyrir að íbúum fjölgi og þjónusta við borgarbúa sé bætt.

„Þrátt fyrir að okkur hafi tekist að snúa miklum hallarekstri yfir í að skila núna afgangi þá erum við meðvituð um að verkefninu er ekki lokið. Við munum áfram leggja okkur fram um að leita leiða til að bæta reksturinn og þannig skapa svigrúm til þess að bæta enn frekar þjónustu við íbúa”.

30-35 milljarðar í viðhaldsátak

Reykjavíkurborg segist hafa sett í forgang umfangsmikið viðhaldsátak á skólabyggingum, bæði leik- og grunnskóla. Áætlun næstu 5 til 7 árin hljóðar upp á 30-35 milljarða króna bæði í viðgerðum á skólahúsnæði og uppbyggingu til að fjölga leikskólaplássum.

Borgin segir að einnig sé lögð áhersla á viðhald og uppbyggingu íþróttamannvirkja sem nýtast börnum og ungmennum í borginni.

Þá sé eitt af höfuðmarkmiðum Reykjavíkurborgar að hraða húsnæðisuppbyggingu. Fjármunum sé forgangsraðað til uppbyggingar gatna- og veituinnviða fyrir nýjar íbúðir en líka atvinnustarfsemi.

„Áhersla er á að byggja á þeim svæðum sem styðja við virka ferðamáta og almenningssamgöngur en einnig ryðja nýtt land og styrkja úthverfin með aukinni byggð. Sett hafa verið markmið um að hafa tiltækar byggingarhæfar lóðir fyrir allt að 1500 – 3000 íbúðir á hverjum tíma. Í dag eru yfir 2600 íbúðir í byggingu og byggingarhæfar lóðir fyrir 2662 íbúðir til viðbótar.“