Flugfélagið Fly Play hf. gerir ráð fyrir að taprekstri síðustu ára verði umsnúið í hagnað fyrir skatta á næstu tveimur árum, samkvæmt sviðsmynd sem birt er í nýrri fjárfestakynningu samhliða yfirtökutilboði frá tveimur stærstu hluthöfum félagsins.
Þar kemur fram að félagið spáir 3,1 milljónar dala hagnaði fyrir skatta (EBT), eða sem nemur 390 milljónum króna, árið 2026 og 6,4 milljóna dala EBT hagnaði árið 2026 eftir að hafa tapað 51,6 milljónum dala fyrir skatta árið 2024.
Flugfélagið gerir jafnframt ráð fyrir að jákvæðu sjóðstreymi frá rekstri frá og með næsta ári.
Sjóðstreymi (e. Cashflow) verður jákvætt um 9 milljónir dala árið 2026 og 13 milljónir dala árið 2027, sem er umtalsverð bæting frá neikvæðu sjóðstreymi upp á 29 milljónir dala árið 2024.
Viðsnúningurinn byggir á róttækri breytingu á rekstri félagsins. Play hyggst hætta öllum tengiflugum (svokölluðu hub-and-spoke líkani) og beina áherslu að tveimur meginþáttum: Setja sex af tíu flugvélum félagsins í leiguflug og einblína á ferðir milli Íslands og suðlægra áfangastaða með fjórum vélum.
Sviðsmyndin gerir ráð fyrir að tekjur Play muni dragast saman í kjölfar breytinga á viðskiptalíkani, úr 292 milljónum dala árið 2024 niður í 208 milljónir árið 2026.
Hins vegar lækkar kostnaður enn meira og þar af leiðandi muni framlegð aukast.

Leiga arðbærari en áætlanaflug
Framlegðargreining félagsins sýnir að sólarlandaflugið og leiguflugið séu hvort fyrir sig arðbærari en eldri rekstrarform flugfélagsins. Árið 2026 er gert ráð fyrir eftirfarandi framlagi:
Leiguflug og samstarf muni skila framlagi á bilinu 16,3–18,9 milljónir dala
Sólarlandaflug frá Íslandi mun skila framlagi upp á 13,9–18,6 milljónir dala.
Í samanburði skilaði tengiflugið yfir Atlantshaf 20 milljóna dala tapi árið 2024, sem er lykilástæða þess að því verður hætt, samkvæmt fjárfestakynningu.