Ríkisstjórnin hyggst skoða „af mikilli alvöru“ þá ósk Listaháskóla Íslands (LHÍ) að starfsemi skólans verði sameinuð í húsnæði Tækniskólans á Skólavörðuholti í stað Tollhússins við Tryggvagötu, sem áður var áætlað, að því er kemur fram í tilkynningu háskólaráðuneytisins.

„Samkvæmt nýrri greiningu myndi þessi breyting ekki aðeins bæta verulega aðstöðu fyrir nemendur og kennara heldur einnig spara milljarða króna í framkvæmdakostnaði.“

Skipaður verður verkefnahópur með fulltrúum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, forsætisráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og LHÍ til að kanna fýsileika þess að koma LHÍ fyrir í húsnæði Tækniskólans á Skólavörðuholti og er miðað við að hann skili af sér niðurstöðu fyrir 29. nóvember næstkomandi.

Húsnæði Tækniskólans á Skólavörðuholti
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Kostnaðurinn hefði verið tæplega 17 milljarðar

Framkvæmdasýsla-Ríkiseignir hefur áætlað að framkvæmdir við Tollhúsið myndu kosta tæplega 17 milljarða króna, sem er um 5 milljörðum meira en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.

„Ekki aðeins þyrfti að rífa hluta Tollhússins heldur einnig reisa um 9000 fermetra nýbyggingu til að húsnæðið nýttist starfsemi LHÍ, auk þess sem aðstæður í Kvosinni auka flækjustig slíkrar framkvæmdar. Aukni kostnaðurinn myndi leiða til ríflega 45% hærra leiguverðs hjá LHÍ frá fyrri áætlunum sem mæta þyrfti með hagræðingu á öðrum sviðum.“

Þá segir að takmarkaðir stækkunarmöguleikar séu fyrir hendi við Tryggvagötu en aðsókn í LHÍ hafi aukist mikið eftir niðurfellingu skólagjalda.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fagnar tillögum Listaháskólans og segir í tilkynningunni að með þessari lausn sé verið að spara allt að 10 milljarða króna.

„Þetta er skýrt dæmi um hvernig árangurstengd fjármögnun sem nú er verið að innleiða í háskólunum knýr fram betri ákvarðanir og hagkvæmari lausnir. Þegar gagnsæi er til staðar á sama tíma og innleiddir eru hvatar til að nýta fjármagn sem best í þágu nemenda forgangsraða skólarnir fjármagni sínu betur,“ segir Áslaug Arna.

„Áður kepptust skólar við að byggja sem mest húsnæði og kostnaðurinn hafði ekki áhrif á rekstur skólanna. Nú fá skólarnir heildarfjárveitingu byggða á árangri þeirra í menntun nemenda og rannsóknum og hluti af fjármagninu fer í leigu á húsnæði sem þeir nota.“

Fyrstu áform um að sameina LHÍ í Tollhúsinu voru kynnt á ríkisstjórnarfundi í ágúst 2021, en kennsla skólans fer í dag fram í sex byggingum víðsvegar um Reykjavík. Uppbyggingar framtíðarhúsnæðis LHÍ í Tollhúsinu er jafnframt getið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og í maí 2022 var undirrituð viljayfirlýsing sama efnis milli ríkis, LHÍ og Reykjavíkurborgar.

Í tilkynningunni segir að með flutningi Tækniskólans í nýtt húsnæði í Hafnarfirði, sem áætlað er að rísi haustið 2029, skapist tækifæri til að nýta húsnæði skólans á Skólavörðuholti með öðrum hætti. LHÍ hafði frumkvæði að því að vinna greinargerð um mögulegan flutning starfsemi sinnar á Skólavörðuholt.

Áætlað hefur verið að LHÍ gæti flutt inn í Tollhúsið eftir átta til tíu ár en í tilfelli Skólavörðuholts yrðu það að líkindum fjögur til fimm ár.