Stjórnir Sparisjóðs Höfðhverfinga hf. og Sparisjóðs Strandamanna hf. hafa undirritað samrunaáætlun um sameiningu sjóðanna en hún tekur mið af stöðu sjóðanna í upphafi árs.
Í tilkynningu segir að hinn sameinaði sjóður muni heita Smári sparisjóður hf. og verði áfram markaðssettur undir merkjum Sparisjóðanna.
Samhliða samrunaáætluninni voru undirritaðir samningar við KEA sem tryggja sameinuðum sjóði aukið hlutafé til vaxtar en það er eitt meginmarkmiða með sameiningu sjóðanna.
„Fjárhagsstaða sameinaðs sjóðs verður mjög traust, sjóðurinn verður með hátt eiginfjárhlutfall og sterka lausafjárstöðu og því vel í stakk búinn til þess að stækka efnahagsreikning sinn töluvert á næstu misserum,“ segir í tilkynningu.
Sjóðurinn mun leggja áherslu á að þjónusta starfssvæði sín í Eyjafirði og á Ströndum líkt og þeir sjóðir sem eru að sameinast hafa gert frá upphafi en samtals eiga sjóðirnir 280 ára samfellda rekstrarsögu.
„Með þessu eflast þessir sjóðir mjög mikið og hafa aukna getu til að þjónusta sín nærsvæði enn betur en þeir hafa gert til þessa. Þetta styrkir líka heildarumgjörð þeirra sparsjóða sem eru starfandi en þeir verða þá þrír og allir svipaðir að stærð,“ segir Jóhann Ingólfsson, stjórnarformaður Sparisjóðs Höfðhverfinga hf.
Hluthafafundir sjóðanna, þar sem samrunaáætlunin verður til afgreiðslu, verða svo haldnir síðsumars.
„Sameinaður sparisjóður verður fjárhaglega sterkur og enn betur í stakk búinn til þess að styða við nærsamfélagið og sækja fram. Áfram verður unnið að auknu samstarfi sparisjóða í gegnum Samband Íslenskra Sparisjóða. Framundan eru krefjandi verkefni við samþættingu sjóðanna og vöxt til framtíðar,“ segir Víðir Álfgeir Sigurðarson, stjórnarformaður Sparisjóðs Strandamanna hf.