Bandaríkjastjórn hóf nýtt tollastríð þegar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna lagði ofurtolla á vörur frá Kanada, Mexíkó og Kína. Svo virðist sem einungis sé tímaspursmál þar til Bandaríkjastjórn leggi samskonar tolla á vörur frá Evrópusambandinu. Fyrir rúmri viku sagðist Trump stefna að því að leggja 25% toll á vörur frá Evrópusambandinu.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, segir að margt enn óljóst.
„Bandaríkjaforseta finnst greinilega að það halli á Bandaríkin í alþjóðaviðskiptum og ef hann telur að þetta sé besta leiðin þá verður bara svo að vera,“ segir Guðmundur Fertram. „Þetta mun hinsvegar leiða til þess að spilin verði stokkuð á ný og dreift aftur, sem líklegt er að leiði til annarskonar viðskiptablokka í heiminum en við þekkjum í dag. Í þessu eru bæði tækifæri og ógnir. Svo er auðvitað óljóst hvernig þetta endar og kannski verða tollarnir lægri en talað er um núna og þá með minni áhrif."
Guðmundur Fertram segist í sjálfu sér ekki hafa verulega áhyggjur af efnahag Íslendinga.
„Við erum vön því að takast á við miklar sveiflur í okkar hagkerfi og búum m.a. að okkar eigin gjaldmiðli sem hjálpar til þar. Ég tel að stjórnvöld eigi að fylgjast vel með, greina þá atburði sem eiga sér stað og meta áhrif á efnahagslífið, en halda sér til hlés í alþjóðasamskiptum."
Spurður hvaða þýðingu það hefði fyrir Kerecis ef 25% tollar yrðu lagðir á íslenskar vörur svarar hann. „Þeir myndu vissulega hafa áhrif á afkomu okkar en ekki stórvægilega."
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.